
Almennar upplýsingarM5 er vefur sem fjallar um verðbréfamarkaðinn á Íslandi og tekur til hlutabréfa-, skuldabréfa- og gjaldeyrisviðskipta. Vefurinn opnaði fyrst mánudaginn 10. júlí 2006 og hefur veitt íslenskum fjárfestum upplýsingar um stöðuna á markaði dag og nótt síðan. Opnun M5 markaði tímamót þar sem í fyrsta sinn var kominn heildstæður og vandaður verðbréfavefur fyrir fjárfesta, nema í fjármálafræðum og aðra sem fylgjast vilja náið með verðbréfamarkaði hérlendis. Vefurinn er í eigu og rekstri Vefmiðlunar ehf.
Nafnið M5 er þannig til komið að á vefnum er aðgangur að markaðsgögnum sem safnað er saman allan þann tíma sem markaðir eru opnir. Opnunartími innlendra markaða er alla virka daga vikunnar frá 10-16.23 nema helgidaga og almenna frídaga. Nafnið vísar því til þess að M5 birtir gögn af markaðnum 5 daga vikunnar. Aukinheldur var talið að nafnið M5 hljómaði vel, væri ekki bundið við íslenska tungu og væri viðeigandi á vefinn. Nafnið M5 er skrásett vörumerki og þar með lögvarið.
Ritstjórn M5 hefur það hlutverk að fylgjast með daglegum rekstri síðunnar. Sjá til þess að gögn streymi þétt og örugglega allan sólahringinn, fylgjast með og gæta að viðskiptafréttum úr ólíkum áttum. Svara fyrirspurnum notenda og viðhalda fullum gæðum vefsins. Meðlimir ritstjórnar hafa menntun á sviði hagfræði, viðskiptafræði og hugbúnaðarverkfræði ásamt reynslu í verðbréfaviðskiptum og hugbúnaðargerð. Sími ritstjórnar er 551-9060.
M5 hefur frá upphafi verið í eigu Vefmiðlunar ehf. sem fer þar með 100% eignarhlut. Vefmiðlun hefur um árabil starfað við fjármáltengda þjónustu við fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið rekur nokkur stór fjármálakerfi og hefur smíðað mikinn fjölda fjármálala- og hugbúnaðarlausna. Mælt er með heimasíðu fyrirtækisins en hún svarar nánast öllum spurningum varðandi reksturinn og mál tengd félaginu.
Skrifstofa vefsins er í Skipholti 50c á 2. hæð til hægri. Ritstjórn vefsins er við á skrifstofutíma og svara símtölum og tölvupósti innan þess tíma. Netþjónar og annar vélbúnaður eru til húsa hérlendis og greiða notendur því ekki sérstaklega fyrir erlent niðurhal við notkun sína á vefnum. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband í gegnum tölvupóst á netfangið en öllum bréfum er svarað samdægurs sé því við komandi.
Vefmiðlun ehf.
v/ M5.is
Skipholti 50c,
105 Reykjavík
Forsíða
| Vísitölur
| Gjaldmiðlar
| Fréttir
| Fróðleikur
| Um vefinn
