Atvinnugreinar · Allar greinar

Fjármál og markaðir

Bankar, sjóðir, hlutabréfamarkaðir og fjármögnun.

Lyklitölur greinarinnar

Stýrivextir 8,00% ▲ +0,25 pr.st. frá síðustu breytingu 19. ágú. 2026

Vextir á sjö daga bundnum innlánum í Seðlabankanum.

Nafnvextir til 10 ára 6,74% – 0,00 pr.st. frá fyrri degi 12. nóv. 2026

Par-vextir óverðtryggðra skuldabréfa til 10 ára.

VSK-velta fjármála 17.241 m.kr. ▼ -2.473 m.kr. frá fyrra tímabili 31. ágú. 2026

Velta fjármála- og vátryggingastarfsemi samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum á tveggja mánaða tímabili.

Allar fréttir sýndar (50)

mbl.is Fjármál og markaðir

Bláa lónið: Milljarðs umframeftirspurn

Alls bárust tæplega fjögur þúsund áskriftir að hlutum í almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins, að andvirði um 15,3 milljarða króna. Útboðinu lauk klukkan 16 í dag og nam heildarsöluandvirði þess tæpum 14,3 milljörðum króna.

ruv.is Fjármál og markaðir

Áskrift fengist í alla falboðna hluti Bláa lónsins

Áskrift hefur fengist í alla þá hluti Bláa lónsins hf. sem boðnir voru út í almennu útboði sem hófst á þriðjudaginn var. Áskriftartímabilinu lauk samkvæmt áætlun núna klukkan fjögur síðdegis samkvæmt tilkynningu Bláa lónsins til Kauphallarinnar. Núverandi hluthafar voru ekki að selja sína hluti…

ff7.is Fjármál og markaðir

Full þátttaka náðist

Nú hafa borist skráningar fyrir öllum þeim 150 milljónum hluta sem í boði voru í hlutafjárútboði Bláa lónsins. Frá þessu er greint í tilkynningu en...

mbl.is Fjármál og markaðir

Vilhjálmur: Glórulaust að selja Landsbankann

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir það fráleita hugmynd að selja Landsbankann til að fjármagna framkvæmdir vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, varpaði þessari hugmynd fram í samtali við Morgunblaðið í dag.

visir.is Fjármál og markaðir

Leggur til að selja Landsbankann

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, vill að ríkið skoði að selja Landsbankann til að fjármagna samgöngusáttmálann. Henni hugnast ekki að skattleggja höfuðborgarbúa vegna uppbyggingar á forsendum sáttmálans.

ruv.is Fjármál og markaðir

Hraunar yfir Seðlabanka Íslands

„Ísland hefur verið með sinn eigin seðlabanka í nærri 100 ár. Því miður hefur það ekki verið farsæl saga.“. Svona byrjar pistill sem danski hagfræðingurinn Lars Christensen birti á Facebook síðu sinni í gær. Hann er mörgum Íslendingum að góðu kunnur. Hann var yfirhagfræðingur Danske Bank í Danmörku…

visir.is Fjármál og markaðir

Betri rekstur og aukin samlegð lyfta upp verðmati Beru

Rekstur Beru á fyrri helmingi rekstrarársins var talsvert betri en greinendur höfðu gert ráð fyrir og hefur verðmat félagsins verið hækkað lítillega. Ný félög innan samstæðunnar hafa styrkt afkomuna verulega, en rannsókn Samkeppniseftirlitsins hefur hins vegar neikvæð áhrif á verðmatið vegna…

visir.is Fjármál og markaðir

Snúist ekki lengur einungis um blátt lón

Forstjóri Bláa lónsins segir tímasetningu skráningar á markað rétta þrátt fyrir þyngsli á markaðnum. Hlutafjárútboð fer fram á sama tíma og félagið stendur í stærstu fjárfestingu sem ráðist hefur verið í í ferðaþjónustu á Íslandi. Starfsemin snúist ekki lengur einungis um blátt lón í Svartsengi.

heimildin.is Fjármál og markaðir

Tveir af hverjum þremur telja aðhald Seðlabankans of mikið

Tveir af hverjum þremur markaðsaðilum telja peningastefnu Seðlabanka Íslands of stranga. Hlutfallið hefur hækkað úr 50 prósentum í ágúst í 65 prósent samkvæmt nýrri könnun bankans. Á sama tíma hefur þeim sem telja aðhaldið of lítið fækkað verulega. Aðeins einn svarandi af 31 er þeirrar skoðunar, en…

ruv.is Fjármál og markaðir

Vilja auka hlutafé Bláa Lónsins hf. um 14 milljarða

Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. hófst í morgun og stendur til föstudags. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri félagsins, segir að til standi að sækja rúmlega 14 milljarða í nýtt hlutafé. Núverandi hluthafar eru ekki að selja sína hluti heldur er verið að sækja nýtt hlutafé. Viðskipti hefjast með…

vb.is Fjármál og markaðir

Boða nýtt vaxtarskeið

Nýtt fjármagn fer m.a. í vaxtarfjárfestingar sem eiga að stuðla að því að Ísland verði einn helsti heilsu-, vellíðunar- og upplifunaráfangastaður heims.

mbl.is Fjármál og markaðir

Hluthafar í mál við Huang og Nvidia

Stefnan var lögð fram við alríkisdómstól í Kaliforníu í gær. Þar segir að Huang og Nvidia hafi villt um fyrir hluthöfum um áhyggjur af þjóðaröryggi sem tengdust ástarsambandinu. Villandi yfirlýsingar þeirra hafi orðið til þess að verð á hlutabréfum Nvidia var óeðlilega hátt.

visir.is Fjármál og markaðir

Ekkert eðlilegt við há gjöld íslenskra sjóða

Prófessor við Viðskiptafræðideild furðar sig á því hve lítið er fjallað um árlegan kostnað sem fylgir fjárfestingum í hinum ýmsu sjóðum hér á landi. Kostnaðurinn sé ívið hærri á Íslandi en hjá öðrum samanburðarlöndum. Lítil þúfa velti þungu hlassi.