Heildarafli, allar fisktegundir og löndunarhafnir, í tonnum á mánuði.
Atvinnugreinar · Allar greinar
Sjávarútvegur og fiskeldi
Útgerð, vinnsla, fiskeldi og sjávarafurðir.
44 fréttir í fréttasafninu Eldra efni →
Lyklitölur greinarinnar
Heildarframleiðsla í fiskeldi í tonnum á ári.
FOB-verðmæti útflutnings sjávarafurða á ári, í milljónum króna.
Allar fréttir sýndar (44)
Þórður Snær segir að sagan hafi dæmt bábiljurnar um veiðigjöld – Methagnaður og glænýr frystitogari
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, segir að baráttan fyrir leiðréttingu veiðigjalda í fyrra hafi verið ein sú mikilvægasta í íslenskri stjórnmálasögu. Hamfaraspár stórútgerðarinnar og stjórnarandstöðunnar hafi fallið um sjálfar sig.
Nýr kjarasamningur fyrir smábáta
Í morgun var undirritaður nýr kjarasamningur Sjómannasambandsins, SSÍ, við Landssamband smábátaeigenda,LS, og Samtök smærri útgerða, SSÚ. Síðast var gerður kjarasamningur fyrir smábáta árið 2012. Samningurinn er í anda þess samnings sem sjómenn gerðu 2024 við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS…
Tap Kaldvíkur nam 2,6 milljörðum
Uppsafnað rekstrartap sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur fyrstu níu mánuði ársins er næstum tvöföld upphæð sama tímabils í fyrra. Fyrirtækið birti ársfjórðungsuppgjör sitt í morgun.
Fagna fyrsta samningi frá árinu 2012
„Það er fagnaðarefni að loksins hafi tekist að gera nýjan samning fyrir smábáta,“ segir Sjómannasambandið og formaður Landssambands smábátaeigenda fagnar einnig.
Eyjarnar flúðu hundleiðinlegt veður og haugasjó
Skipstjórarnir á Vestmannaey og Bergey létu illa af veðrinu. Bæði skip hafi byrjað á Gerpisflakinu en flúið til veiða að Hvalbaknum hundleiðinlegu veðri og haugasjó.
Deila um hvort laxeldið myndi valda veiðibanni innan sjávarjarða
Fyrirhugað laxeldi Kaldvíkur í Seyðisfirði er umdeilt og Samtökin Vá berjast gegn eldinu. Segja má að þau andi kröftuglega niður um hálsmálið á Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Hún á enn eftir að veita byggingarleyfi fyrir sjókvíunum. Kaldvík þurfti að hnika til akkerum Sumarið 2025…
Smábátasjómenn undirrita kjarasamning
Í morgun var undirritaður nýr kjarasamningur Sjómannasambands Íslands við Landssamband smábátaeigenda og Samtök smærri útgerða. Þetta er í fyrsta sinn sem gerður er kjarasamningur fyrir smábáta síðan 2012. Meðal þess sem samið var um er að sjómenn á smábátum fái 3,5% í tilgreinda séreign frá…
Útflutningur fiskeldis nálgast 60 milljarða
Í október voru fluttar út eldisafurðir fyrir 5,6 milljarða króna. Það er um 3% aukning frá sama mánuði í fyrra, en á föstu gengi nemur aukningin rúmum 4%. Útflutningsverðmæti eldisafurða er þar með komið í tæpa 57 milljarða króna á fyrstu tíu mánuðum ársins, sem er rúmlega 36% aukning á föstu gengi…
Fjórtán ár frá síðustu undirritun
Stefnt er að undirritun nýs kjarasamnings Sjómannasambands Íslands, VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Félags skipstjórnarmanna við LS fyrir hádegi í dag.
Hluti flotans gæti landað í Færeyjum
„Kolefnisgjaldið skaðar samkeppnishæfni Íslands,“ segir Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims.
Hætta samningaumleitun og ákveða fast gjald á löndun eldislax
Bæjarráð Vesturbyggðar samþykkti á fundi fyrr í vikunni að fela bæjarstjóra og hafnarstjóra að ákveða fast eldisgjald fyrir hvert kíló sem landað er til slátrunar. Hingað til hefur Hafnasjóður rukkað eldisgjald í samræmi við hlutfall af verðmæti fisksins en sveitarfélagið hefur átt í…
„Við erum ekki hér til að sannfæra fólk“
„Við erum hérna að bregðast við ákallinu og orðræðunni um að við hefðum getað gert betur að eiga samtal við íbúa erum hér í dag að taka fyrsta skrefið í því - eiga samtalið og hlusta,“ segir Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og stoðsviða Kaldvíkur. Laxeldið er hitamál á Seyðisfirði…
Minni hækkun á kolefnisgjaldi breytir ekki afstöðu SFS
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) telja að kolefnisgjald á fiskiskip hafi ekki skilað þeim loftslagsávinningi sem stefnt var að og að það grafi undan samkeppnishæfni Íslands. Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur SFS í umhverfismálum, segir það litlu breyta að gjaldið hækki minna en gert var ráð…
Útflutningur eldis nálgast 60 milljarða
Í október voru fluttar út eldisafurðir fyrir 5,6 milljarða króna, sem er um 3% aukning frá sama mánuði í fyrra, að því er segir í umfjöllun Radarsins.
Hætta viðræðum og breyta eldisgjaldi einhliða
Hafnasjóður Vesturbyggðar vill fá 4,60 krónur á hvert landað kíló af eldislaxi. Arnarlax býður eina krónu og segir sjóðinn hafa oftekið gjöld. Fyrirtækið hafi greitt sjóðnum um 610 milljónir króna frá árinu 2020.
Línuívilnun og strandveiði hafa minni jákvæð áhrif en sértæki byggðakvótinn
Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst hefur lokið rannsókn og birt skýrslu um strandveiðar og byggðakvóta. Í skýrslunni er fyrst fjallað stuttlega um sjávarútveg almennt en síðan varpað ljósi á þróun sjávarútvegs og samfélags í þeim sveitarfélögum sem hafa notið…
Magnús ómyrkur í máli vegna „maður á mann“ kynningar - „Skammist ykkar Kaldvík“
Magnús Guðmundsson, stjórnarmaður í VÁ, félagi um vernd fjarðar, er ósáttur við að laxeldisfyrirtækið Kaldvík komi til Seyðisfjarðar með „einhliða maður á mann kynningu“ á starfsemi fyrirtækisins. Einnig að fyrirtækið hafi reynt að hindra aðild landeigenda í firðinum að byggingarleyfisumsókn.
SFS vilja lækka kolefnisgjald á eldsneyti fiskiskipa
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) vilja að kolefnisgjald á eldsneyti fiskiskipa verði lækkað verulega eða fellt niður á meðan raunhæfir kostir til orkuskipta eru ekki fyrir hendi. Samkvæmt nýrri greiningu samtakanna hefur gjaldið á gas- og dísilolíu nær tífaldast í krónum á lítra frá því að…
Hverjir eru að græða á Íslandi?
Afkoma fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu, að undanskilinni fjármála- og vátryggingastarfsemi, nam tæplega 518 milljörðum króna árið 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum. Þær byggja á fyrstu skilum skattframtala. „Það var nær óbreytt niðurstaða frá árinu 2024 þegar þau skiluðu alls 520 milljörðum í hagnað…
Kolefnisgjaldið nær tífaldast frá 2010
Fiskiskip og fiskimjölsverksmiðjur greiddu samtals um 25 milljarða króna í kolefnisgjald á árunum 2010–2025.
Tíföldun kolefnisgjalds á fiskiskip
Helstu samkeppnisþjóðir íslensks sjávarútvegs hafa ýmist undanþegið fiskiskip sambærilegum gjöldum, frestað þeim eða bætt útgerðum þau upp
SFS vilja endurmat gjalda á olíunotkun
Í nýrri greiningu SFS er sagt mikilvægt að stjórnvöld endurmeti gjaldtöku vegna olíunotkunar í sjávarútvegi og láti hana taka mið af því sem gerist í nágrannalöndunum.
Fiskeldið tapaði 18 milljörðum
Á sama tíma fjárfestu félögin fyrir 45 milljarða, sem er met, og áform eru uppi um 230 milljarða til viðbótar.
Skipstjórinn studdist við úrelt lög
Fiskistofa hefur svipt strandveiðibát á Norðurlandi heimild til strandveiða í eina viku á næsta strandveiðitímabili vegna brottkasts. Skipstjórinn taldi sér heimilt að sleppa lífvænlegum þorski.
Bregðast við laxalús með lyfjagjöf
Arctic Fish hefur greint frá því að yfir standi meðhöndlun gegn laxa- og fiskilús í sjókvíum fyrirtækisins á Vestfjörðum.
Andstaða við hömlur á útflutning óunnins fisks
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Landssamband smábátaeigenda og Félag skipstjórnarmanna styðja ekki auknar hömlur á útflutning óunnins fisks.
Haaland jók vitund um norskan lax
Markaðsherferð með Erling Braut Haaland, framherja Manchester City, í forgrunni hefur aukið vitund neytenda í Bandaríkjunum og Kína um norskan lax. Löndin eru helstu útflutningslönd Noregs á laxi.
Stór sprunga í skrokk Óla á Stað
Plastið aðeins tveir millimetrar og sjór streymdi inn í vélarrúmið
Allt að tveir milljarðar í arð
Útgerð er nú rekin innan Eskju hf. en landvinnsla innan Eskju Vinnslu ehf.
Síldarvinnslan kaupir nýjan frystitogara
Síldarvinnslan hefur fengið samþykkt kauptilboð í nýsmíðaðan frystitogara, sem er í eigu skipasmíðastöðvarinnar Tersan Shipyard í Tyrklandi. Kaupin eru sögð hluti af endurnýjun skipaflota SVN.
Argentína vegur þyngst í lakri afkomu
Iceland Seafood hefur lækkað afkomuspá sína fyrir árið 2026 um nærri fjórðung. Bilanir hafa komið niður á rekstri frystitogara í Argentínu.
Jákvæð afkomuviðvörun og glænýr togari
Iceland Seafood International hf. hefur endurskoðað afkomuhorfur sínar fyrir árið 2026. Endurskoðuð afkomuspá er að leiðréttur hagnaður fyrir skatta verði á bilinu 8,5 til 10,5 milljónir evra, sem er sambærilegt við afkomu ársins 2025, en lægri samanborið við áður birta afkomuspá upp á 11,5 til…
Reksturinn betri en áður var ætlað
Síldarvinnslan gerir ráð fyrir 21,7 til 23,8 prósenta hærri EBITDA-hagnaði af samstæðu félagsins á árinu en áður hafði verið settur fram í afkomuspá.
ISI lækkar afkomuspána um meira en 20%
Lækkun afkomuspárinnar skýrist einkum af lakari afkomu en vænst var í starfsemi samstæðunnar í Argentínu.
SVN færir upp afkomuspána um meira en 20%
EBITDA hagnaður Síldarvinnslunnar eftir fyrstu níu mánuði ársins er þegar við neðri mörk fyrri afkomuspár fyrir árið í heild.
Komin með 9 milljarða hlut í Brimi
Fjárfestingarfélagið Ívar er komið með 5,3% hlut í Brimi.
Stefna á 60 þúsund tonna ársframleiðslu á laxi
Í Þorlákshöfn rís landeldisstöðin First Water og er fyrsti áfangi af sex langt kominn. Að framkvæmdum loknum er áætlað að árleg framleiðslugeta séu 60 þúsund tonn af laxi á ári. Miðað við áætlanir annarra fyrirtækja sem eru í uppbyggingu á landeldi verður ...
Engar fréttir fundust. Prófaðu önnur leitarorð eða annan miðil.








































