Fréttir · Nóvember 2026 · Eldra efni

10. nóvember 2026

101 fréttir birtust þennan dag. Síaðu eftir miðli eða leitaðu í fréttunum.

Allar fréttir sýndar (101)

visir.is

„Frábær byrjun“ að Vilhjálmur líti í eigin barm

Formaður Neytendasamtakanna segist sammála formanni Starfsgreinasambandsins um að meira aðhald þurfi með fyrirtækjum landsins sem skili ekki gengisstyrkingu út í verðlag. Hann eigi þó að líta í eigin barm enda skipi hann í stjórnir lífeyrissjóða, stærstu eigenda íslenskra fyrirtækja.

mbl.is Tækni og nýsköpun

Gervigreindarmállíkön taki upp auglýsingar

Mörg gervigreindarfyrirtæki munu á endanum neyðast til þess að taka upp auglýsingar vegna þrýstings innan gervigreindargeirans til að standa straum af gríðarlegum útgjöldum, og hafa mörg þeirra þegar opnað fyrir innreið auglýsinga inn í mállíkön sín.

ruv.is Fjármál og markaðir

Vilja auka hlutafé Bláa Lónsins hf. um 14 milljarða

Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. hófst í morgun og stendur til föstudags. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri félagsins, segir að til standi að sækja rúmlega 14 milljarða í nýtt hlutafé. Núverandi hluthafar eru ekki að selja sína hluti heldur er verið að sækja nýtt hlutafé. Viðskipti hefjast með…

visir.is Ferðaþjónusta

Auðlindagjaldið hafi legið fyrir frá upphafi

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir það hafa verið ljóst frá stofnun ríkisstjórnarinnar að auðlindagjald yrði sett á ferðamannastaði. Hún neitar frásögnum um að enginn fyrirsjáanleiki hafi verið til staðar.

vb.is Tækni og nýsköpun

Bjarga lífum með íslenskum hugbúnaði

Nýju smáforriti er ætlað að einfalda sjófarendum að deila staðsetningu sinni og koma þeim til bjargar í háska. Stefnt er á útrás á fimm erlenda markaði á næsta ári og fjóra til viðbótar árið 2028. Framkvæmdastjóri Arctic Applications horfir til þess að gera fyrirtækið að einhyrningi.

vb.is Orka og stóriðja

Ekkert að sjá hér

Fyrsti varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hefur gert upp hug sinn um Landsvirkjunarmálið þrátt fyrir að rannsókn sé ekki hafin.

vb.is

Hvað nú?

„Hvers vegna er þjóðarsáttin undantekning en ekki regla hér á landi?“

vb.is

Koss dauðans?

Stuðningsyfirlýsingar eiga það til að snúast fljótt upp í andhverfu sína.

vb.is Tækni og nýsköpun

Draumurinn rættist í New York

Kári Finnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Stokks Software. Hann er hagfræðingur og listfræðingur að mennt og stundaði meðal annars nám við Sotheby's Institute of Art í New York.

vb.is Tækni og nýsköpun

Verkfærin vakin úr dvala

Nítján ára frumkvöðull opnaði nýlega íslenskt markaðstorg sem tengir saman fólk sem vill leigja út hluti og þá sem þurfa á þeim að halda tímabundið. Um 70 auglýsingar hafa þegar verið birtar á vefnum, sem ber heitið Leiguport.

vb.is Fjármál og markaðir

Boða nýtt vaxtarskeið

Nýtt fjármagn fer m.a. í vaxtarfjárfestingar sem eiga að stuðla að því að Ísland verði einn helsti heilsu-, vellíðunar- og upplifunaráfangastaður heims.

vb.is

Nóvembernornin og vötnin miklu

Í dag eru 51 ár liðin frá því að bandaríska flutningaskipið Edmund Fitzgerald sökk í miklu óveðri á Efra vatni.

vikubladid.is Samgöngur og flutningar

Njáll Trausti vill flug frá Akureyri til Kaupmannahafnar

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Norðausturkjördæmis, segir mikilvægt að koma á reglulegu áætlunarflugi milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Hann telur slíkt flug geta haft veruleg áhrif á byggðaþróun, atvinnulíf og uppbyggingu heilsársferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi. Í Facebookfærslu…

visir.is

Borgi sig að herða loftslagsaðgerðir frekar en að greiða fyrir vanefndir

Skynsamlegra er fyrir íslensk stjórnvöld að ráðast í frekari samdrátt gróðurhúsalofttegunda þrátt fyrir að þau standist ekki alþjóðlegar skuldbindingar sínar frekar en að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða króna. Ísland stendur sig verst Norðurlandanna í að draga úr losun.

ruv.is

Atvinnuleysi jókst um 0,3%

Skráð atvinnuleysi í október var 4,3% samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar sem birt voru í dag. Atvinnuleysi jókst því um 0,3% milli mánaða en meðalfjöldi jókst um 517 manns. Að meðaltali voru 8.743 skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun í október, þar af voru 5.216 karlar og 3.527 konur. Á sama…

visir.is Ferðaþjónusta

Óttast öngþveiti í viðkvæmri náttúru

Vísbendingar eru um að ferðamenn muni koma sér hjá gjaldskyldum svæðum við náttúruperlur til þess að sleppa við gjaldtöku, segir oddviti sveitarstjórnar Hrunamannahrepps. Hann óttast öngþveiti á svæðum þar sem innviðir eru ekki til staðar.

vb.is

Þema Met Gala fyrir næsta ár tilkynnt

Met Gala er eitt stærsta tískukvöld ársins og þemað að þessu sinni snýst um hversdagslegan klæðnað og hvernig fatahönnuðir vinna með hann.

vb.is

Skráð atvinnuleysi á uppleið

Skráð atvinnuleysi hækkaði um 0,3 prósentustig í október og Vinnumálastofnun spáir annarri eins hækkun í nóvember.

mbl.is

Landsréttur staðfestir frávísun í samráðsmáli

Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um frávísun máls Alcoa Fjarðaáls gegn Eimskip og Samskipum. Alcoa hafði krafist viðurkenningar á skaðabótaskyldu félaganna vegna meints tjóns af samráði þeirra á árunum 2008 til 2013.

bb.is

Ísafjarðarbær: ekkert í verkmenntahús á næsta ári

Framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árin 2027-2032 hefur verið lögð fram í bæjarstjórn. Tillögunni var síðan vísað til síðari umræðu. Birt hefur verið áætlunin fyrir næsta ár. Þar er gert ráð fyrir framkvæmdum upp á 2,3 milljarða króna, þar af verið hlutur Ísafjarðarbæjar 1,2 milljarðar króna…

mbl.is Ferðaþjónusta

Verði einn helsti áfangastaður heims

Forsvarsmenn Bláa lónsins vilja gera Ísland að einum helsta heilsu- og upplifunaráfangastað í heimi á næstu fimm til tíu árum. Hlutafjárútboð Bláa lónsins, sem hófst klukkan 10 í dag, er hluti af þeirri hugsun.

bb.is

Vestfirðir: framúrskarandi fyrirtækin voru 20

Creditinfo birti á dögunum lista yfir 16 fyrirtæki á Vestfjörðum sem voru framúrskarandi fyrirtæki samkvæmt þeirra upplýsingum um fjárhag og afkomu á síðasta ári. Miðað er við að rekstrartekjur hafi að lágmarki verið 60 milljónir króna reikningsárin 2023–2025, rekstrarhagaður öll árin og a.m.k. 20%…

mbl.is Fjármál og markaðir

Hluthafar í mál við Huang og Nvidia

Stefnan var lögð fram við alríkisdómstól í Kaliforníu í gær. Þar segir að Huang og Nvidia hafi villt um fyrir hluthöfum um áhyggjur af þjóðaröryggi sem tengdust ástarsambandinu. Villandi yfirlýsingar þeirra hafi orðið til þess að verð á hlutabréfum Nvidia var óeðlilega hátt.

visir.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Jákvæð afkomuviðvörun og glænýr togari

Iceland Seafood International hf. hefur endurskoðað afkomuhorfur sínar fyrir árið 2026. Endurskoðuð afkomuspá er að leiðréttur hagnaður fyrir skatta verði á bilinu 8,5 til 10,5 milljónir evra, sem er sambærilegt við afkomu ársins 2025, en lægri samanborið við áður birta afkomuspá upp á 11,5 til…

bbl.is Landbúnaður og matvæli

Noregur er „mjaltaþjónaland“ Norðurlanda

Sjálfvirkar mjaltir halda áfram að ryðja sér til rúms á Norðurlöndum og nýjustu tölur sýna að aldrei hafa fleiri kúabændur nýtt sér mjaltaþjóna en einmitt nú. Þróunin hefur verið nær samfelld allt frá því fyrstu mjaltaþjónarnir komu á markað fyrir rúmum t ...

visir.is Ferðaþjónusta

„En það traust er nú brotið“

Forsvarsmenn tveggja ferðaþjónustufyrirtækja gagnrýna framgöngu Viðreisnar í skoðanagrein á Vísi í dag og segja traust greinarinnar gagnvart flokknum vera brotið. Viðreisn hafi lofað fyrirsjáanleika fyrir ferðaþjónustuaðila og að ekki sé hægt að bakka með afleiðingar sem ný lög gætu haft í för með…