Fréttir · Nóvember 2026 · Eldra efni

11. nóvember 2026

86 fréttir birtust þennan dag. Síaðu eftir miðli eða leitaðu í fréttunum.

Allar fréttir sýndar (86)

ruv.is Tækni og nýsköpun

Stjórn Nvidia sögð ætla steypa forstjóranum af stóli

Stjórn Nvidia, eins stærsta tæknifyrirtækis heims, hyggst steypa forstjóra og stofnanda fyrirtækisins af stóli. Huang er flæktur í njósnahneyksli sem gæti skekið gervigreindariðnaðinn en hann er talinn hafa haldið framhjá eiginkonu sinni til 40 ára með kínverskum njósnara. Samkvæmt heimildarmönnum…

visir.is Verslun og veitingar

Hélt að þau væru hólpin fram að áramótum

Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) segir lokun Hamborgarafabrikkunnar og Hlöllabáta á Bíldshöfða í Reykjavík vera alvarleg tíðindi. Staðirnir voru innsiglaðir af lögreglu að beiðni skattayfirvalda í dag.

visir.is Fasteignir og byggingar

Hitafundur í Grindavík: „Við treystum ykkur ekki“

Töluverður hiti var á fundi fasteignafélagsins Þórkötlu þar sem endurkaupaáætlun var kynnt fyrir Grindvíkingum. Íbúar sögðust ekki treysta félaginu og gagnrýndu ákvarðanir þess harðlega. Einn þeirra vísaði í að samskipti félagsins og íbúanna væru líkt og stríð.

visir.is Fasteignir og byggingar

Önnur hver ný íbúð selst undir ásettu verði

Önnur hver ný íbúð á höfuðborgarsvæðinu selst nú undir auglýstu söluverði og hefur hlutfallið farið hækkandi undanfarin tvö ár. Enn algengara er að eldri íbúðir seljist undir ásettu verði, eða í nær 85 prósent tilvika. Fasteignasalar segja verðlækkanir í söluferli íbúða orðnar mjög algengar.

vb.is Samgöngur og flutningar

Öryggisbrestur hjá þjónustuveitanda Icelandair

Icelandair hefur verið upplýst um öryggisbrest hjá Amadeus, alþjóðlegum þjónustuveitanda sem rekur bókunarkerfi fyrir flugfélög víða um heim. Óviðkomandi aðili fékk aðgang að tilteknum bókunarupplýsingum farþega, þar á meðal bókunum tengdum Icelandair.

mbl.is Verslun og veitingar

Birgjar og leigusalar geti setið uppi með tjónið

Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT, segja afleiðingar lokana og gjaldþrota veitingastaða ná langt út fyrir rekstrarfélögin sjálf. Leigusalar, birgjar og þjónustuaðilar geti setið uppi með verulegar ógreiddar kröfur þótt þeir hafi staðið við allar sínar skuldbindingar.

visir.is Orka og stóriðja

Telur stjórn Landsvirkjunar bera alla ábyrgð

Stjórn Landsvirkjunar ber alla ábyrgð á þeirri stöðu sem er komin upp hjá fyrirtækinu að mati Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Hún bætti við í svari sínu á Alþingi í dag að deilan um samskipti Landsvirkjunar og fjármálaráðuneytisins hefði skaðað traust á fyrirtækinu.

mbl.is Verslun og veitingar

Tengist ekki lokun Minigarðsins

Athafnarmaðurinn Sigmar Vilhjálmsson sem var einn eigenda Minigarðsins segir innsiglun Skattsins og lögreglunar á Hamborgarafabrikkunni og Hlöllabátum á Bíldshöfða ekki tengjast neitt lokun Minigarðsins sem tilkynnt var um í byrjun vikunnar.

ruv.is Samgöngur og flutningar

Akureyringar gagnrýna Tenerife-flug Icelandair

Einhverjir Akureyringar fögnuðu eflaust þeim fréttum sem bárust í gær að Icelandair ætlaði að hefja beint flug frá Akureyri til Tenerife næsta haust. EasyJet flýgur tvisvar í viku frá Akureyri til London og tvisvar í viku til Manchester yfir vetrartímann. Flug Icelandair bætist við haustið 2027…

visir.is Verslun og veitingar

ÁTVR hættir sölu neftóbakshorna

ÁTVR ætlar að hætta framleiðslu neftóbakshorna. Búist er við að birgðir klárist í nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÁTVR. Íslenskt neftóbak á sér langa sögu og hefur verið selt í ýmis konar ílátum, eins og dósum og krukkum, frá 1941. Tóbakshornin komu fyrst í sölu 1992. Í tilkynningunni…

visir.is Orka og stóriðja

Yfir 400 milljónir í aðgerðir gegn lykt frá Gaju

Sorpa þarf að skipta um búnað í gas- og jarðgerðarstöðinni Gaju fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna bilana sem fyrirtækið segir hafa aukið lykt frá Álfsnesi. Hundrað og átján ábendingar um lykt bárust Mosfellsbæ á fyrstu níu mánuðum ársins, þar af 102 frá því í júlí. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar…

visir.is

Knapanum kippt af hestinum úti í miðri á

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra mótmæla skerðingu á framlögum ríkisins. Formaðurinn segir það dýrkeypt fyrir hið opinbera að ganga svona fram gegn landsbyggðinni.

frettin.is Orka og stóriðja

Örgjörvar gagnavera úreldas – almenningur borgar skuldirnar

Júlíus Valsson skrifar: Framtíðin blasir við þegar teikningar af nýju gagnaveri liggja á borðinu. Þar verða til tekjur og raforkuviðskipti um ókomin ár, eða svo er að minnsta kosti okkur sagt. Síðan bætast við vindmyllur á hverjum rokrassi og virkjanir í hverri sprænu, sem eiga að sjá vélasölunum…

mbl.is Ferðaþjónusta

900 þúsund bílar á ári

Kirkjufellsfoss á Snæfellsnesi, skammt vestan við Grundarfjarðarbæ, er vinsæll ferðamannastaður og segir Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri að um 900 þúsund bílar fari í gegnum bæinn á hverju ári og því til viðbótar komi 60-70 þúsund ferðamenn með skemmtiferðaskipum.

ruv.is Orka og stóriðja

Vindorkumál reyna á samstöðu í sveitarfélögum

Rúmlega 1200 hafa skrifað undir lista til að mótmæla hugmyndum um uppbyggingu vindorkuvers á Hólaheiði við Hnotastein í Norðurþingi. Franska fyrirtækið Qair vill reisa þrjátíu 200 metra háar vindmyllur sem geta framleitt um 216 megavött af raforku. Sveitarstjórn Norðurþings vill að þessi…

visir.is Verslun og veitingar

Hamborgarafabrikkan á Höfðatorgi innsigluð

Hamborgarafabrikkan á Höfðatorgi hefur verið innsigluð að beiðni Skattsins. Staðurinn opnaði fyrst á Höfðatorgi árið 2010 og er síðasta Hamborgarafabrikkan sem er eftir utan Litlu-Fabrikkunnar sem opnaði á Tryggvagötu í ágúst.

bb.is Samgöngur og flutningar

Alþingi: veggjöld af Sundbraut fjármagna Fljótagöng?

Birt hefur verið svar fjármálaráðherra Daða Más Kristóferssonar (C) við fyrirspurn Ólafs Adolfssonar, alþm. (D) um fjármögnun Fljótaganga. Spurt var Hversu hátt eiginfjárframlag ríkissjóður þurfi að leggja til félagsins Ganga og brúar ohf. eða sérstaks verkefnafélags vegna Fljótaganga. Í svarinu…

mbl.is Verslun og veitingar

Hraðlestin kveður Hverfisgötu eftir 23 ár

Hraðlestin kveður húsnæði sitt við Hverfisgötu 64a eftir 23 ára samfelldan rekstur. Frá 16. nóvember verður starfsemin í miðbæ og Vesturbæ sameinuð á Granda, þar sem starfsfólkið á Hverfisgötu gengur til liðs við teymið.

heimildin.is Fjármál og markaðir

Tveir af hverjum þremur telja aðhald Seðlabankans of mikið

Tveir af hverjum þremur markaðsaðilum telja peningastefnu Seðlabanka Íslands of stranga. Hlutfallið hefur hækkað úr 50 prósentum í ágúst í 65 prósent samkvæmt nýrri könnun bankans. Á sama tíma hefur þeim sem telja aðhaldið of lítið fækkað verulega. Aðeins einn svarandi af 31 er þeirrar skoðunar, en…

bb.is

Ísafjarðarbær: almenn gjaldskrárhækkun 2,5%

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt breytingar á gjaldskrám fyrir næsta ár. Í minnisblaði bæjarritara til bæjarstjórnar segir að horft sé til þess að allar almennar gjaldskrár í A-hluta sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs hækki ekki meira en sem nemur 2,5%. Litið hafi veriðsvo á að…

visir.is Orka og stóriðja

Framleiðsla í Vaðölduveri undir væntingum Landsvirkjunar

Gert er ráð fyrir tilraunarekstri á vindmyllum í Vaðölduveri út veturinn. Landsvirkjun segir framleiðslu undir væntingum og vísar til milds veðurs. Allar fjórtán vindmyllurnar hafa verið í gangi í að minnsta kosti tíu daga en þó misjafnt hverju margar eru í gangi hverju sinni. Vindorkuverið var…

dv.is Verslun og veitingar

Wolt í miklum vexti

Í tilkynningu frá Wolt, sem hefur starfað hér á landi síðan 2023, kemur fram að nú hafa meira en 230 milljónir pantana borist frá verslunum á mörkuðum fyrirtækisins.

mbl.is

Stríðið gæti kostað tæplega 97 þúsund milljarða

Uppsafnað efnahagstap Persaflóaríkjanna vegna stríðs Bandaríkjanna og Írans gæti numið 790 milljörðum Bandaríkjadala fram til ársins 2030, jafnvirði tæplega 96.700 milljarða íslenskra króna. Þetta kemur fram í skýrslu tryggingafélagsins Allianz Trade sem birt var í dag.

ff7.is

Hvíta húsið er ekki að guggna á tollunum

Hvíta húsið ætlar að halda tollastefnu Trumps til streitu þrátt fyrir slæmt gengi Repúblikana í þingkosningunum í síðustu viku og hækkandi verðlag. „Við erum rétt...

ruv.is Verslun og veitingar

66°Norður hefur sölu í Kína

Sjóklæðagerðin, sem framleiðir og selur vörur undir vörumerkinu 66°Norður, hefur samið við kínverska fatafyrirtækið HLA um stofnun samstarfsfélags. Það á að annast sölu og dreifingu á vörum 66°Norður í Kína. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Samkvæmt samningnum, sem var undirritaður í…

visir.is Samgöngur og flutningar

Gæsahúð í nýja Polestar 4 SUV

„Þetta er hinn fullkomni fjölskyldubíll,“ segir hann afslappaður með aðra hönd á stýri og ég reyni að kinka kolli. Það er hægara sagt en gert, með 2 kílóa hjálm á hausnum. Við brunum á 190 km hraða og hann heldur áfram að tíunda fyrir mér kosti bílsins meðan ég rígheld mér í það sem hendi er næst…

visir.is

Varar við sársaukafullri aðlögun og segir botninn ekki í augsýn

Sterk kólnunarmerki eru komin fram í íslensku efnahagslífi, einkum á vinnumarkaði, og ekki er enn ljóst hvaðan viðspyrna í hagvexti eigi að koma. Eggert Þröstur Þórarinsson, greinandi hjá Acro verðbréfum, telur að efnahagslægðin geti orðið bæði dýpri og langvinnari en spár gera ráð fyrir og varar…

vb.is Orka og stóriðja

Sagan öll til athugunar

Landsvirkjunarmálið hefur vaxið frá ágreiningi um stjórnunaráherslur í athugun Alþingis á verklagi ráðherra, fundum og samskiptum við stjórnina.

bb.is Samgöngur og flutningar

Ísafjarðarbær: 22% afgangur af rekstri Ísafjarðahafna

Fram kemur í fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir 2027, sem hefur verið lögð fram, að tekjur hafnasjóðs á næsta ári er áætlaðar verða 979 m.kr. og afgangur af rekstri þegar gert hefur verið ráð fyrir rekstrarkostnaði og fjármagnskostnaði verði 217 m.kr. eða um 22% af tekjum. Langstærstur hluti…

mbl.is Orka og stóriðja

„Engin skilaboð falin í því“

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur að samtöl sín um rekstrarmál við stjórn Landsvirkjunar án forstjórans í janúar hafi verið innan marka hins leyfilega, þar sem hann hafi aðeins verið að óska upplýsinga.

mbl.is

Skattaleg meðferð sé samkeppnishæf

„Ég tek undir það að fyrirsjáanleiki og samkeppnishæft skattaumhverfi eru grundvallarforsendur þess að við getum haldið áfram að vaxa og dafna, m.a. með því að laða til landsins fjárfestingar,“ segir Bjarni.

mbl.is Verslun og veitingar

66°Norður opnar búðir í Kína

Sjóklæðagerðin, sem rekur útivistarmerkið 66°Norður, hefur gert stóran samning við kínverska fatafyrirtækið HLA Group. Í samtali við Morgunblaðið lýsir Helgi Rúnar Óskarsson forstjóri viðskiptunum sem miklum tímamótum