Fréttir · Nóvember 2026 · Eldra efni

12. nóvember 2026

97 fréttir birtust þennan dag. Síaðu eftir miðli eða leitaðu í fréttunum.

Allar fréttir sýndar (97)

mbl.is Lyf og líftækni

Runólfi hugnast ekki stefna ráðherra

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans er verulega ósáttur við þá stefnu menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að taka upp skólagjöld við íslenska háskóla fyrir fólk frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins.

ruv.is Fasteignir og byggingar

Snúist um endurreisn bæjarfélags ekki fasteignaviðskipti

Kristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur, segir endurkaupaáætlun Þórkötlu ekki taka tillit til ólíkra aðstæðna Grindvíkinga. Fasteignafélagið Þórkatla kynnti í gær endurkaupaáætlun þar sem Grindvíkingum býðst að kaupa til baka fasteignir sem félagið keypti eftir að bærinn var rýmdur vegna…

ruv.is Sjávarútvegur og fiskeldi

„Við erum ekki hér til að sannfæra fólk“

„Við erum hérna að bregðast við ákallinu og orðræðunni um að við hefðum getað gert betur að eiga samtal við íbúa erum hér í dag að taka fyrsta skrefið í því - eiga samtalið og hlusta,“ segir Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og stoðsviða Kaldvíkur. Laxeldið er hitamál á Seyðisfirði…

ruv.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Minni hækkun á kolefnisgjaldi breytir ekki afstöðu SFS

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) telja að kolefnisgjald á fiskiskip hafi ekki skilað þeim loftslagsávinningi sem stefnt var að og að það grafi undan samkeppnishæfni Íslands. Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur SFS í umhverfismálum, segir það litlu breyta að gjaldið hækki minna en gert var ráð…

ruv.is Verslun og veitingar

Íslendingar greinilega fræddir en ekki hræddir

Íslendingar ætla greinilega að vera viðbúnir en mikil söluaukning hefur verið á þeim hlutum sem mælt er með að eiga í bæklingnum Verum viðbúin sem almannavarnir gáfu út í byrjun mánaðarins. Bæklingnum er ætlað að stuðla að því að heimili og fjölskyldur séu undirbúin þegar óvæntar aðstæður skapast…

ruv.is Orka og stóriðja

Leggur til að virkjanir undir 25 MW verði utan rammaáætlunar

Virkjanir undir 25 MW þurfa ekki að fara í gegnum rammaáætlun ef frumvarp Umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðuneytisins nær fram að ganga. Frumvarpið á að einfalda leyfisferla og flýta uppbyggingu orkuinnviða. Í dag þurfa virkjanir undir 10 MW ekki að fara í rammaáætlun. Í sama frumvarpi er lagt…

heimildin.is Tækni og nýsköpun

Njósnahneyksli felldi forstjóra Nvidia af stalli

Jensen Huang lætur af störfum sem framkvæmdastjóri bandaríska tæknirisans Nvidia. Þetta tilkynnti hann fyrir stuttu. Hlutabréfaverð fyrirtækisins tók mikla dýfu þegar upp komst að hann hafi haldið framhjá með konu sem sögð er vera kínverskur njósnari. Í gær komst sömuleiðis upp um meint framhjáhald…

mbl.is Samgöngur og flutningar

Skýr svör skortir um fjármögnun

„Ég held að það væri mjög fróðlegt að efna til skoðanakönnunar fljótlega meðal íbúa um hvort þeim myndi hugnast áform um veggjöld í Reykjavík. Ég held að slík könnun myndi leiða í ljós að það sé enginn vilji til þess hjá íbúum.“

ruv.is Landbúnaður og matvæli

Ullarverð til bænda hríðfellur annað árið í röð

Ullarverð Ístex til bænda lækkar um meira en 30 prósent á næsta ári, annað árið í röð. Ístex stendur enn í skuld við bændur, en sauðfjárbóndi í stjórn fyrirtækisins hefur trú á að reksturinn fari að taka við sér. Hvít lambsull í hæsta gæðaflokki, verðmætasta ull bænda, var í fyrra metin á 613…

mbl.is Tækni og nýsköpun

Nvidia í frjálsu falli

Hlutabréf í bandaríska tæknirisanum Nvidia féllu um 13% við upphaf viðskipta í kauphöllinni í New York í dag eftir að Jensen Huang, stofnandi og forstjóri félagsins, lét af störfum í kjölfar hneykslismáls.

mbl.is

Áhyggjur af of víðtæku gildissviði

Samtök atvinnulífsins, SA, gera alvarlegar athugasemdir við drög að reglugerð atvinnuvegaráðherra sem ætlunin er að setja á grunni laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila hér á landi.

ruv.is Fjármál og markaðir

Hraunar yfir Seðlabanka Íslands

„Ísland hefur verið með sinn eigin seðlabanka í nærri 100 ár. Því miður hefur það ekki verið farsæl saga.“. Svona byrjar pistill sem danski hagfræðingurinn Lars Christensen birti á Facebook síðu sinni í gær. Hann er mörgum Íslendingum að góðu kunnur. Hann var yfirhagfræðingur Danske Bank í Danmörku…

visir.is

Danir lækka fyrirtækjaskatta í fyrsta sinn í áratug til að efla samkeppnishæfni

Danska ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi um umfangsmiklar skattalækkanir til að styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins og hvetja til fjárfestinga. Fyrirtækjaskattur verður meðal annars lækkaður úr 22 í 19 prósent á næstu þremur árum, auk þess sem dregið verður úr ýmsum álögum og skattlagningu…

visir.is Samgöngur og flutningar

Hafnaði Austfirðingum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra er sagður hafa hafnað því að fresta fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú á fundi með Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi (SSA). Stjórn sambandsins gagnrýnir samráðsleysi við undirbúning breytinganna.

visir.is Fasteignir og byggingar

Bæjarstjórn lýsir yfir vantrausti á Þórkötlu

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur lýst yfir vantrausti á hendur fasteignafélaginu Þórkötlu og framgöngu félagsins gagnvart Grindvíkingum. Íbúafundur var haldinn í Gjánni í Grindavík í gær þar sem kynntar voru áætlanir Þórkötlu um sölu eigna til Grindvíkinga sem keyptar voru eftir að eldgos hófust nærri…

visir.is Fjármál og markaðir

Betri rekstur og aukin samlegð lyfta upp verðmati Beru

Rekstur Beru á fyrri helmingi rekstrarársins var talsvert betri en greinendur höfðu gert ráð fyrir og hefur verðmat félagsins verið hækkað lítillega. Ný félög innan samstæðunnar hafa styrkt afkomuna verulega, en rannsókn Samkeppniseftirlitsins hefur hins vegar neikvæð áhrif á verðmatið vegna…

mbl.is Ferðaþjónusta

Tíu milljónir fyrir laxveiði í tvo daga

Líkast til er það heimsmet þegar kemur að verðlagningu á laxveiðileyfum, sú upphæð sem nafnlaus einstaklingur greiddi fyrir tvo daga í ánni Alta. Uppboð á vegum Redd villaksen fór betur en nokkur þorði að vona.

visir.is Orka og stóriðja

Vill flýtimeðferð í eignarnámsmálum

Orkuráðherra vill að leiða ágreining um eignarnám vegna raforkuframkvæmda að jafnaði til lykta á innan við ári. Frumvarp sem á að flýta uppbyggingu flutnings- og dreifikerfis raforku verður kynnt í samráðsgátt í dag.

mbl.is

Vilja heyra af hindrunum í utanríkisviðskiptum

Sérstaklega er leitað eftir ábendingum um sóknarfæri á erlendum mörkuðum, viðskiptahindranir og hvernig stjórnvöld geti betur stutt við hagsmuni íslensks atvinnulífs.

ff7.is Fasteignir og byggingar

Þakbarinn Rúvtopp

Þann 1. apríl á næsta ári verður tekið í notkun 174 herbergja hótel við Laugaveg 176. Hluti af gömlu byggingunni var endurnýttur en hún jafnframt...

frettin.is Sjávarútvegur og fiskeldi

SFS vilja lækka kolefnisgjald á eldsneyti fiskiskipa

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) vilja að kolefnisgjald á eldsneyti fiskiskipa verði lækkað verulega eða fellt niður á meðan raunhæfir kostir til orkuskipta eru ekki fyrir hendi. Samkvæmt nýrri greiningu samtakanna hefur gjaldið á gas- og dísilolíu nær tífaldast í krónum á lítra frá því að…

vb.is

Spá 5,9-6,0% verðbólgu í nóvember

Landsbankinn spáir lækkun vísitölu neysluverðs um 0,41% í nóvember og að ársverðbólga fari í 6,0%. Þetta kemur fram í hagsjá bankans. „Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á…

bb.is Samgöngur og flutningar

Innviðafélag: Klettháls kemur til greina

Jarðgöng undir Klettsháls er eitt af þeim verkefnum sem kemur til greina að nýstofnað innviðafélag Göng og brú ohf taki að sér að framkvæma segir í svari innviðaráðherra Eyjólfs Ármannsssonar við fyrirspurn Bæjarins besta. En ekki hafi verið tekin ákvörðun um það hvort eða hvenær viðræður hefjist…

heimildin.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Hverjir eru að græða á Íslandi?

Afkoma fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu, að undanskilinni fjármála- og vátryggingastarfsemi, nam tæplega 518 milljörðum króna árið 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum. Þær byggja á fyrstu skilum skattframtala. „Það var nær óbreytt niðurstaða frá árinu 2024 þegar þau skiluðu alls 520 milljörðum í hagnað…

vb.is Lyf og líftækni

Gengi Alvotech tekur dýfu eftir uppgjör

Alvotech birti í gærkvöldi uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins, þar sem meðal annars kemur fram að heildartekjur hafi dregist saman um tæplega hundrað milljónir dala á milli ára en rekstrarhagnaður aukist um tíu milljónir dala. Það sem af er morgni hefur gengi hlutabréfa í félaginu lækkað um…

visir.is

Verðbólga aukist í sex prósent

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga aukist í sex prósent í nóvember. Vísitala neysluverðs muni þó lækka um 0,41 prósent vegna nóvembertilboða og flugfargjalda.

vb.is

Amaroq hagnast um 2 milljarða

Hagnaður námufélagsins Amaroq nam 24,4 milljónum kanadadala, jafnvirði um 2,1 milljarðs króna, á þriðja ársfjórðungi ársins.

visir.is Samgöngur og flutningar

Flugmenn samþykkja verkfall í leiguflugi

Flugmenn Icelandair hafa samþykkt ótímabundnar verkfallsaðgerðir sem takmarkast við leiguflug félagsins. Verkfallið hefst 20. nóvember. Félagsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna samþykktu verkfallið með tæpum 94% atkvæða. Í tilkynningu FÍA til félagsmanna segir að leiguflug taki bæði til…

mbl.is

Vilja skýrari reglur og færri tafir

Ófyrirsjáanleg túlkun reglna og sein afgreiðsla mála hjá hinu opinbera draga úr fjárfestingu og hagvexti og bitna á endanum á lífskjörum. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við Morgunblaðið

bb.is Samgöngur og flutningar

Ísafjarðarbær: kaup á nýjum dráttarbát á næsta ári

Í fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir næsta ár, sem hefur verið lögð fram og er til umfjöllunar, kemur fram á fjárfesting hafnasjóðs verði 658 m.kr. Á Ísafirði verði framkvæmt fyrir 583 m.kr. og 75 m.kr. á Þingeyri. Fjárfestingarnar beinast einkum að uppbyggingu og öryggi á hafnarsvæðinu á…

bb.is Samgöngur og flutningar

Innviðaráðherra: vetrarþjónusta fullfjármögnuð

Aukið fjármagn í viðhald vega, fullfjármögnun vetrarþjónustu og stofnun innviðafélags til að hraða stórframkvæmdum á sviði samgangna eru á meðal verkefna sem ríkisstjórnin hefur unnið að á kjörtímabilinu sagði Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra á Alþingi í fyrradag þegar hann mæli fyrir fyrir…

ruv.is Orka og stóriðja

Ljósleiðarinn nær til um 80% heimila og verður boðinn til sölu

Hámarka á verðmæti Ljósleiðarans fyrir eigendur, hvort sem niðurstaðan verði að Orkuveitan eigi félagið áfram, nýir eigendur eignist það að hluta eða í heild eða að það verði skráð á markað. Ljósleiðarinn er að öllu leyti í eigu Orkuveitunnar og langstærsti eigandi hennar er Reykjavíkurborg, en…

visir.is

Hrósaðu fjórum sinnum áður en þú gagnrýnir

Þumalputtareglan er: Fjögur á móti einu. Sumsé: Að hafa það á bak við eyrað að þegar við ætlum að gagnrýna eða benda á það sem betur má fara séum við búin að hrósa fjórum sinnum fyrst.

visir.is Fjármál og markaðir

Snúist ekki lengur einungis um blátt lón

Forstjóri Bláa lónsins segir tímasetningu skráningar á markað rétta þrátt fyrir þyngsli á markaðnum. Hlutafjárútboð fer fram á sama tíma og félagið stendur í stærstu fjárfestingu sem ráðist hefur verið í í ferðaþjónustu á Íslandi. Starfsemin snúist ekki lengur einungis um blátt lón í Svartsengi.