Fréttir · Nóvember 2026 · Eldra efni

13. nóvember 2026

106 fréttir birtust þennan dag. Síaðu eftir miðli eða leitaðu í fréttunum.

Allar fréttir sýndar (106)

mbl.is Fjármál og markaðir

Bláa lónið: Milljarðs umframeftirspurn

Alls bárust tæplega fjögur þúsund áskriftir að hlutum í almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins, að andvirði um 15,3 milljarða króna. Útboðinu lauk klukkan 16 í dag og nam heildarsöluandvirði þess tæpum 14,3 milljörðum króna.

vb.is

Bíókvöld fram að jólum

Hér eru nokkrar vanmetnar jólamyndir sem væri gaman að bæta á áhorfslistann fyrir jólin.

mbl.is Tækni og nýsköpun

Hver tekur við af Huang?

Nú þegar Jensen Huang hefur látið af störfum sem forstjóri tæknirisans Nvidia og Cloett Kress tekið tímabundið við sem starfandi forstjóri vakna upp spurningar um það hver muni taka við þessum tæknirisa.

vb.is

Keypti kvikmyndahús fyrir einn dollara

Bandaríkjamaður í smábænum Mayville í Norður-Dakóta keypti sögufrægt kvikmyndahús fyrir einn dollara árið 2013. Þrettán árum síðar er húsið enn í rekstri og nú stendur til að stækka það fyrir aldarafmælið.

ruv.is Fjármál og markaðir

Áskrift fengist í alla falboðna hluti Bláa lónsins

Áskrift hefur fengist í alla þá hluti Bláa lónsins hf. sem boðnir voru út í almennu útboði sem hófst á þriðjudaginn var. Áskriftartímabilinu lauk samkvæmt áætlun núna klukkan fjögur síðdegis samkvæmt tilkynningu Bláa lónsins til Kauphallarinnar. Núverandi hluthafar voru ekki að selja sína hluti…

visir.is Samgöngur og flutningar

Nýja Þjórsárbrúin opnuð eftir þrjú ár

Vegagerðin hefur samið við Borgarverk um lagningu Búðafossvegar og smíði nýrrar Þjórsárbrúar á móts við þorpið Árnes. Framkvæmdir hefjast um næstu áramót og á þeim að ljúka í árslok 2029, eftir þrjú ár, samkvæmt tímaáætlun.

ff7.is Fjármál og markaðir

Full þátttaka náðist

Nú hafa borist skráningar fyrir öllum þeim 150 milljónum hluta sem í boði voru í hlutafjárútboði Bláa lónsins. Frá þessu er greint í tilkynningu en...

ruv.is Orka og stóriðja

Náttúrunni ætlað að greiða fyrir hagvöxt til skamms tíma

Engin rök eru fyrir því að lækka stærðarmörk virkjanakosta rafmagns utan rammaáætlunar niður í tíu megawött úr 25, segir Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar. Það þýði að fleiri virkjanir, allt að 24,9 megawött geti farið í skipulagsferli án þess að fá umfjöllun hjá Rammanum sem…

bb.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Nýr kjarasamningur fyrir smábáta

Í morgun var undirritaður nýr kjarasamningur Sjómannasambandsins, SSÍ, við Landssamband smábátaeigenda,LS, og Samtök smærri útgerða, SSÚ. Síðast var gerður kjarasamningur fyrir smábáta árið 2012. Samningurinn er í anda þess samnings sem sjómenn gerðu 2024 við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS…

sa.is

Menntun þarf að opna fyrir fleiri tækifæri

SA og fleiri samtök í atvinnulífinu kalla eftir metnaðarfyllri markmiðum um lesskilning, fleiri iðnnámsplássum og greiðari leiðum fyrir fullorðna til að ljúka námi.

vb.is

Andri Hrafn til Attentus

Attentus – mannauður og ráðgjöf hefur ráðið til sín Andra Hrafn Sigurðsson, klínískan sálfræðing.

visir.is

Laufeyjargosið fær verðlaun

Samstarf íslensku tónlistarstjörnunnar Laufeyjar og Collab hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna á World Beverage Innovation Awards 2026. Verkefnið var valið besta markaðsherferðin. Verðlaunin voru afhent á þriðjudaginn á BrauBeviale í Nürnberg í Þýskalandi.

ruv.is Orka og stóriðja

Glórulaust að selja ljósleiðara

Glórulaust er að selja innviði á borð við ljósleiðara, segir Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri jarðskjálfta og jarðhniks hjá Veðurstofu Íslands. Umfram allt verði að tryggja að ljósleiðarar nýtist við náttúruvöktun og rannsóknir á náttúrufyrirbærum á borð við jöklahreyfingar, jarðskjálfta og…

mbl.is

Fimm af sex falla í flokkinn „nokkur áhætta“

Úrbótum vegna sex af sjö ábendingum sem innri endurskoðun Reykjavíkurborgar setti fram um innkaup og samningsstjórnun árið 2022 er enn ólokið. Fimm þessara sex ábendinga falla í áhættuflokkinn „nokkur áhætta“.

ruv.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Smábátasjómenn undirrita kjarasamning

Í morgun var undirritaður nýr kjarasamningur Sjómannasambands Íslands við Landssamband smábátaeigenda og Samtök smærri útgerða. Þetta er í fyrsta sinn sem gerður er kjarasamningur fyrir smábáta síðan 2012. Meðal þess sem samið var um er að sjómenn á smábátum fái 3,5% í tilgreinda séreign frá…

mbl.is Fjármál og markaðir

Vilhjálmur: Glórulaust að selja Landsbankann

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir það fráleita hugmynd að selja Landsbankann til að fjármagna framkvæmdir vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, varpaði þessari hugmynd fram í samtali við Morgunblaðið í dag.

mbl.is

Tugir milljarða í súginn árlega

„Íþyngjandi regluverk og óskilvirkni stofnana hefur veruleg áhrif á fyrirtæki innan raða samtakanna,“ segir Sigurður Hannesson.

vb.is

FBI á æfingu sprengjusérfræðinga á Íslandi

Árleg æfing sprengjusérfræðinga Atlantshafsbandalagsins, sem stendur nú yfir fer að mestu fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli en einnig við hafnir á Suðurnesjum. Fulltrúar FBI eru á æfingunni að miðla þekkingu um meðhöndlun sönnunargagna.

bb.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Útflutningur fiskeldis nálgast 60 milljarða

Í október voru fluttar út eldisafurðir fyrir 5,6 milljarða króna. Það er um 3% aukning frá sama mánuði í fyrra, en á föstu gengi nemur aukningin rúmum 4%. Útflutningsverðmæti eldisafurða er þar með komið í tæpa 57 milljarða króna á fyrstu tíu mánuðum ársins, sem er rúmlega 36% aukning á föstu gengi…

visir.is Tækni og nýsköpun

Víðtæk bilun Microsoft og vegir á óvissustigi

Víðtæk bilun hjá tölvurisanum Microsoft hefur haft áhrif á milljónir notenda um heim allan. Fyrirtæki og stofnanir hafa til að mynda lent í vandræðum með tölvupóst þar sem Outlook-póstforritið er á meðal þeirra sem legið hefur niðri en Microsoft segir að ekki sé um tölvuárás að ræða. Smári Jökull…

visir.is

„Ég er drullusokkur“

Jensen Huang, fyrrverandi forstjóri Nvidia, verðmætasta fyrirtækis heims, virtist niðurbrotinn og orkulítill áður en hann samþykkti, án mótþróa, að láta af störfum. Hann hafði þá varið nokkrum vikum í að neita frásögnum af viðhaldi við konu sem talin er vera kínverskur njósnari en síðar hafði komið…

heimildin.is Orka og stóriðja

Umdeild olíuvinnsluleyfi ógild vegna loftslagsáhrifa

Hæstiréttur Noregs úrskurðaði í dag að þrjú leyfi sem stjórnvöld veittu til olíuvinnslu í Norðursjó væru ógild þar sem ekki hefði verið tekið nægilegt tillit til áhrifa þeirra á losun gróðurhúsalofttegunda. Dómstóllinn féllst á rök loftslagsverndarsinna sem höfðu dregið gildi leyfanna í efa. Þeir…

visir.is Orka og stóriðja

Verkleg hagfræði á viðsjárverðum tímum

Það hefur ekki farið framjá neinum að brotthvarf Harðar Arnarsonar úr forstjórastóli Landsvirkjunar bar nokkuð brátt að. Eftir sautján ár í starfi hefði mátt ætla að starfslok óumdeilds forstjóra yrðu með öðrum hætti. Samskiptin við stjórn fyrirtækisins virðast hins vegar hafa verið komin á það…

visir.is Tækni og nýsköpun

Bilun hjá Microsoft

Bilun kom upp hjá Microsoft sem hefur áhrif á forritin Outlook, Teams, Sharepoint og Copilot. Hundruð þúsunda notenda um allan heim hafa orðið fyrir áhrifum vegna bilunarinnar en Microsoft segir að ekki sé um netárás að ræða.

bbl.is Orka og stóriðja

Hvað þarf Ísland mörg gagnaver?

Björg Eva Erlendsdóttir. Fréttir af veldisvexti gagnavera og vaxandi ásókn í náttúru nágrannalanda fyrir þá starfsemi berast smám saman til Íslands. Nýlegar skýrslur í Noregi og víðar sýna að ágóðinn af gagnaverum rennur að miklu leyti til tæknirisa erlen ...

vb.is

Hvað nú?

„Hvers vegna er þjóðarsáttin undantekning en ekki regla hér á landi?“

ruv.is Tækni og nýsköpun

Notendur ná ekki sambandi víða um heim

Ekki liggur fyrir hvað veldur miklum truflunum í kerfum Microsoft sem hafa áhrif víða um heim. Fyrirtækið telur þó að tengingarvandamálið sé ekki til komið vegna tölvuárásar á kerfi þess heldur megi rekja það til aukins álags á innviði þess. Hundruð þúsunda, eða jafnvel milljónir, notenda hafa átt…

heimildin.is Tækni og nýsköpun

Bandarískir þingmenn kalla Huang til yfirheyrslu

Bandarískir þingmenn hafa boðað Jensen Huang, einn helsta frumkvöðul uppgangs gervigreindar, fyrir þingnefnd til að svara spurningum. Hann á að koma fyrir nefndina í desember. Huang lét af störfum sem forstjóri Nvidia eftir að upp komst um tvö framhjáhöld hans, meðal annars við konu sem grunuð er…

visir.is Fjármál og markaðir

Leggur til að selja Landsbankann

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, vill að ríkið skoði að selja Landsbankann til að fjármagna samgöngusáttmálann. Henni hugnast ekki að skattleggja höfuðborgarbúa vegna uppbyggingar á forsendum sáttmálans.

bb.is Samgöngur og flutningar

Vestfjarðastofa : ófullnægjandi vetrarþjónusta

„Núverandi staða í vetrarþjónustu á Vestfjörðum er hvergi nærri fullnægjandi. Sú staða getur verið fullfjármögnuð en það gildir ekki um 7 daga mokstur á Dynjandisheiði. Ekki heldur um að lengja moksturstíma í Djúpinu og Steingrímsfjarðarheiði (vegi 61) og vesturleiðinni (vegi 60) þannig að…

mbl.is Samgöngur og flutningar

Leggur til sölu Landsbankans

Óvissa ríkir um fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, en ljóst er að þeir fjármunir sem renna áttu til verkefna sáttmálans með sölu byggingarréttar í Keldnalandinu munu ekki skila sér í bráð