Hlutabréfaverð í tæknirisanum Nvidia hefur aukist um allt að 4 prósent í kvöld eftir að félagið birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung. Uppgjörið á væntanlega eftir að róa taugar fjárfesta eftir hrakföll síðustu viku.
Jensen Huang fær ekki að taka aftur við sem forstjóri tæknifyrirtækisins Nvidia. Stjórn fyrirtækisins greindi frá ákvörðun sinni í kvöld. Fyrr í dag sagðist Huang vera reiðubúinn að snúa aftur í stól forstjóra en hann lét af störfum í síðustu viku eftir að upp komst um framhjáhald hans með konu sem…
Heimildarmenn Viðskiptablaðsins meta stöðuna svo að tjónið gæti hlaupið á 10 til 14 milljörðum króna þar sem fjarlægja gæti þurft herbergiseiningarnar. Turninn er þegar skuldsettur fyrir 20 milljarða króna.
Úrvinnslugjald á heyrúlluplasti gæti verið að hækka um 92,3% samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Í dag er úrvinnslugjaldið, það gjald sem er ætlað að standa undir söfnun og úrvinnslu plastsins þegar það hefur lokið hlutverki sínu, 65 krónur á kílóið. Verði af hækkuninni verður það 125…
Flugmenn samþykktu ótímabundið verkfall frá og með 20. nóvember en aðgerðirnar afmarkast við leiguflug fyrir þriðja aðila. Áætlunarflug Icelandair til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli...
Myglu er að finna í um 90% herbergja ókláraðs hótelturns Radisson Red að Skúlagötu 26. Þetta herma heimildir Viðskiptablaðsins. Talið er að tjónið geti numið allt að 14 milljörðum króna. Þá er Arion banki sagður hafa hætt fjárveitingum þegar kom í ljós hve víðtækar skemmdirnar voru. Til stóð að…
Gert er ráð fyrir að frumútboði Anthropic ljúki 18. nóvember. Samanlagt söluandvirði A- og N-hluta gæti numið 87 milljörðum dala miðað við miðbik verðbilsins og yrði þá meira en 75 milljarða dala frumútboð SpaceX fyrr á árinu.
51% íslenskra stjórnenda eru bjartsýnir á vaxtarhorfur eigin fyrirtækja næstu þrjú árin, samanborið við 83% á Norðurlöndum, samkvæmt stjórnendakönnun KPMG.
„Ein leiðin til að veita fjármálaeftirlitinu meira aðhald í ákvörðunum um beitingu stjórnvaldssekta er að setja á fót áfrýjunarnefnd sem getur endurskoðað niðurstöður eftirlitsins.“
Fyrir ríflega viku birti Alþýðusamband Íslands verðlagskönnun sem fékk töluverða fjölmiðlaumfjöllun. Í stuttu máli var niðurstaða könnunarinnar sú að umtalsvert hefði dregið úr hækkunum á matvöru undanfarna mánuði.
Hvernig dettur formönnunum flugstétta í hug að lífeyrissjóðir hafi áhuga á að þrýsta á samninga sem auka kostnað flugfélags sem hefur verið rekið með tapi um langt skeið?
Á fimmtudaginn kemur út tölvuleikurinn Grand Theft Auto VI, rúmum þrettán árum eftir að síðasti leikur seríunnar leit dagsins ljós. Milljónir tölvuleikjaunnenda hafa beðið útgáfunnar með eftirvæntingu og eru gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir bandaríska leikjafyrirtækið Take-Two…
Stefanía Guðrún Halldórsdóttir hefur verið ráðin forstjóri danska fjárfestingarfélagsins Nordisk Games. Hún hefur starfað í leikjaiðnaðinum um árabil og segir að oft gæti misskilnings um heim tölvuleikja.
Feðgarnir Kári Kárason og Hilmar Þór Kárason keyptu netverslunina TrueIceland í mars síðastliðnum. Þeir reka verslunina samhliða öðrum störfum og selja íslenskar vörur til viðskiptavina víða um heim.
Fimmtán fyrirtæki greiddu meira en milljarð króna hvert í tekjuskatt vegna rekstrarársins 2025. Samanlagt greiddu þau nærri helming af öllum álögðum tekjuskatti lögaðila.
Róðurinn hefur þyngst hjá apótekum landsins undanfarin ár. Forstjóri Apótekarans kallar eftir breytingum og telur tækifæri fólgin í því að apótek taki að sér fleiri verkefni innan heilbrigðisþjónustu.
Deutsche Bank tilkynnti yfirvöldum um 3.200 færslur sem tengdust Jeffrey Epstein. Síðustu tveir reikningar hans hjá bankanum voru enn opnir sumarið 2019.
Þátttaka helstu lífeyrissjóða landsins var afar dræm í nýafstöðnu fjórtán milljarða hlutafjárútboði Bláa lónsins, meðal annars hjá sumum stórum sjóðum sem áttu hlutfallslega lítið í félaginu, og réð það miklu um að ekki tókst að fylla tilboðsbók ætlaða stærri fjárfestum í samræmi við markmið…
Þýski fjármálarisinn Deutsche Bank setti eigin hagsmuni ofar því að fylgja alþjóðlegum refsiaðgerðum og lögum og reglum um varnir gegn peningaþvætti. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem rúmlega 200 blaðamenn unnu að. Brotthvarfi bankans frá Rússlandi ólokið Rannsóknin var kölluð Inside Deutsche…
Staðan í birgðageymum hitaveitunnar á Akureyri er fyrir neðan öryggismörk og hefur verið frá því í gærkvöldi. Notkun á heitu vatni hefur aukist umfram framleiðslu vegna kuldakasts síðustu daga. Neyðarstjórn Norðurorku er í viðbragðsstöðu. „Unnið hefur verið að því í dag að bæta stöðuna og heldur sú…
„Allt frá því ég lét af störfum hef ég fundið fyrir miklum þrýstingi frá starfsfólki Nvidia, fjárfestum, samstarfsaðilum og viðskiptavinum um að snúa aftur og...
Aðili sem ætlaði að flytja inn fæðubótarefnið Berberine HCL til einkanota lagði fram stjórnsýslukæru til atvinnuvegaráðuneytisinseftir að póstsending sem innihélt meðal annars efnið var stöðvuð. Ráðuneytið hefur nú úrskurðað að kærunni skuli vísað frá en
Aðeins þrír dagar eru þar til ótímabundið verkfall flugmanna Icelandair í leiguflugi fyrir þriðja aðila á að hefjast. Samkvæmt síðustu staðfestu upplýsingum frá ríkissáttasemjara hafði enginn samningafundur verið boðaður síðdegis á mánudag og ekki hafði verið haldinn formlegur fundur í…
Forstjóri Orkuveitunnar segir að Carbfix muni nú einbeita sér að því að vinna með fyrirtækjum að föngun og förgun koltvísýrings þar sem iðnaðurinn er staðsettur. Lengra sé í að móttöku- og förgunarstöðvar geti orðið að veruleika.
Sautján milljarða króna styrkur Evrópusambandsins til Carbfix verður að öllum líkindum ekki veittur fyrirtækinu samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar. Eru þá öll áform fyrirtækisins um að byggja stórar niðurdælingarstöðvar á koltvísýringi á Íslandi nánast úr sögunni. Carbfix, dótturfélag Orkuveitu…
Vísbendingar eru um að með því að skipta út flotkúlum á höfuðlínu botnvörpu fyrir segl sem viðhalda opnun vörpunnar megi draga úr orkunotkun við drátt á botnvörpunni og minnka mengun í hafinu.
Landaður fiskafli í október 2026 var 106 þúsund tonn, 20% meiri en í október árið á undan. Botnfiskafli var rúm 30 þúsund tonn sem er 18% minni afli en í október 2025. Uppsjávarafli var tæp 75 þúsund tonn, 51% meiri afli en ári fyrr, aðallega vegna meiri síldarafla. Á 12 mánaða tímabili, frá…
Andstaða við skynsamlegar breytingar á greiðslu örorkubóta er mikil og mest hjá þeim fyrirtækjum sem auglýsa grimmt að þau grípi fólk þegar það verður fyrir tjóni. Hér er um að ræða lögfræðistofur. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, er þó bjartsýnn á að eitthvað þokist í þessum efnum.
Skiptastjóri yfir veisluþjónustunni Veislan ehf. sem tekin var til gjaldþrotaskipta í fyrra hefur farið fram á atvinnurekstarbann yfir eigandanum Helga Magnúsi Hermannsyni.
Kortavelta Íslendinga erlendis jókst um 11,3% milli ára í október á föstu gengi, á sama tíma og kortavelta þeirra innanlands dróst saman um 0,1% að raunvirði. Erlend kortavelta hefur aukist það sem af er ári þótt utanlandsferðum hafi fækkað.
Það ríkir töluverð spenna á hlutabréfamörkuðum því við lokun Wall Street í kvöld mun hið umtalaða Nvidia birta uppgjör fyrir síðasta ársfjórðung. Þetta verður fyrsta...
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjavík vilja að samþykki tveggja þriðju hluta sveitarstjórnarmanna þurfi til að selja meirihluta í mikilvægum innviðafyrirtækjum sveitarfélaga.
Gunnar Smári Egilsson ritstjóri Samstöðvarinnar lýsir í nýrri Facebook-færslu yfir þakklæti og segir að nokkrir tugir manna hafi brugðist við neyðarkalli hans vegna fjárþarfar stöðvarinnar.
„Ég reikna með að það verði áfram bjórböð þarna en í breyttri mynd,“ segir Karl Sigfússon verktaki en hann festi kaup á Bjórböðunum á Árskógssandi í lok síðasta árs.
Þann 16. október boðaði innviðaráðherra til fundar með sólarhrings fyrirvara. Þar kynnti hann grundvallarbreytingu á Loftbrúnni. Í stað 40% afsláttar af verði flugmiða á stuðningurinn að vera föst krónutala.
Carbfix skuldaði Orkuveitu Reykjavíkur tæpa 6,6 milljarða króna í árslok 2025. Í heild voru þá tæplega 54 ársverk hjá fyrirtækinu en eins og fram kom fyrr í dag hafa átta starfsgildi verið lögð niður og fjögur færast til Orkuveitunnar. Ársverk verða því fyrir um 42 eftir uppsagnir og tilfærslur.
Bláa lónið greiddi tveimur greiningarfyrirtækjum fyrir verðmöt sem voru um 40 prósentum yfir útboðsgengi félagsins. Þrátt fyrir það telja greinendur þátttöku fagfjárfesta í hlutafjárútboðinu undir væntingum. Stofnandi annars greiningarfyrirtækisins telur að fjárfestar sjái betri tækifæri í öðrum…
Bandarískur vogunarsjóður, sem var langsamlega umsvifamestur í hlutafjárútboði Alvotech fyrr í sumar, hefur að undanförnu haldið áfram að stækka stöðu sína í félaginu fyrir milljarða króna og er búinn að brjóta fimm prósenta múrinn. Fjöldi annarra erlendra fjárfestingasjóða hefur einnig verið að…
Háskólanemum sem taka námslán hefur fækkað á síðustu árum. Skólaárið 2024–2025 tóku 12,5% íslenskra háskólanema námslán. Það er mikil fækkun frá skólaárinu 2008–2009. Þá tóku 57% háskólanema námslán. „Það hefur lækkað verulega hlutfall þeirra sem taka námslán. Skýringin á því er að námslán bera…
Skiptastjóri í þrotabúi veitingafyrirtækis sem Helgi Magnús Hermannsson átti hefur höfðað mál gegn honum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til að fá samþykkt atvinnurekstrarbann gegn honum. Um er að ræða skiptastjóra þrotabús Veislunnar ehf. sem er veitingafyrirtæki sem Helgi Magnús átti og skildi eftir…
Borgarstjóri sendi stjórn Orkuveitunnar bréf í byrjun nóvember þar sem hún hvatti til hagræðingar í fyrirtækinu. Markmið hvatningar borgarstjóra var að skapa svigrúm fyrir umfangsmiklar innviðafjárfestingar og draga úr þörf fyrir lántökur. Borgarstjóri hefur jafnframt boðað sölu Carbfix þar sem…
„Er atvikið rakið til ófullnægjandi frágangs af hálfu eiganda bátsins. Ekki hefur verið sótt um stöðuleyfi vegna bátsins sem var geymdur þarna án leyfis frá bænum.“
Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um náttúru- og innviðagjald var lagt fram á Alþingi í gær. Það er í meginatriðum óbreytt frá upphaflegum drögum sem vöktu litla kátínu hjá ferðaþjónustunni. Ný könnun bendir hins vegar til þess að meirihluti landsmanna styðji gjaldtökuna. Í…
Þrír af hverjum fjórum blaðamönnum hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi vegna fréttaflutnings um mál þar sem upplýsingaóreiða er algeng samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Blaðamannafélag Íslands.
Átta starfsmönnum Carbfix, dótturfélags Orkuveitunnar, var sagt upp störfum í morgun og fjórir starfsmenn færðir til Orkuveitunnar. Stefnubreyting var nýlega gerð hjá Carbfix sem setur afdrif margmilljarða króna Evrópustyrks í óvissu.
Skiptastjóri sex félaga sem komu að uppbyggingu sautján hæða hótelturns í Reykjavík segir markmiðið að finna aðila sem er tilbúinn að klára byggingu turnsins sem fyrst.
Netverslunin Temu á yfir höfði sér aðra háa sekt frá Evrópusambandinu eftir að framkvæmdastjórn ESB komst í dag að þeirri bráðabirgðaniðurstöðu að fyrirtækið hefði ekki gripið til fullnægjandi aðgerða til að vernda neytendur gegn sölu á óöruggum vörum.
Nexus afþreying ehf., félagið sem rekur verslun Nexus í Glæsibæ, hagnaðist um 127 milljónir á síðasta ári. Stjórnin leggur til að eiganda verði greiddar allt að 150 milljónir króna í arð.
Kínverska netverslunin Temu gerir ekki nóg til að hindra sölu á ólöglegum varningi, segir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, og brýtur þannig í bága við viðamikla löggjöf um starfsemi af þessu tagi. Forkönnun ESB hefur leitt í ljós að eftirlitskerfi Temu uppfyllir ekki skilyrði sem sett eru í DSA…
Iðnaðarmenn og verktakar geta komið með úrgang á móttökustöð Terra að Berghellu 1 í Hafnarfirði og greitt samkvæmt raunverulegri þyngd hans. Þar er notast við vigtun í stað þess að áætla rúmmál farmsins.
Sex félög tengd hótelturninum við Skúlagötu hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta eftir að framkvæmdir voru stöðvaðar í byrjun nóvember. Greint er frá gjaldþrotaskiptunum í Lögbirtingablaðinu. Félögin sex eru Rauðsvík ehf., S26 Hotel ehf., S26 Red ehf., Art Verk ehf., Landvík ehf. og S26 Íbúðir…
Veittar eru sérstakar undanþágur fyrir heilbrigðisstarfsfólk og starfsfólk leik- og grunnskóla í nýjum reglum ráðherra um framlög ríkisins til háskóla. Breytingarnar voru birtar á vef stjórnarráðsins í gær og snúa að reglum um fjárveitingar til háskóla. Frá og með háskólaárinu 2027 til 2028 verður…
Stefán Atli er gestur nýjasta þáttar Kaffikróksins, hlaðvarpsþáttar Félags atvinnurekenda, þar sem hann ræðir við Ólaf Stephensen um tækifæri og áskoranir sem fylgja hraðri þróun gervigreindar.
Félögin sem standa að uppbyggingu sautján hæða hótelturns við Skúlagötu hafa verið úrskurðuð gjaldþrota samkvæmt fyrirtækjaskrá. Byggingarsvæðinu var óvænt lokað í byrjun nóvember.
Alvarleg sölutregða á nýbyggingum, vaxandi offramboð íbúða og sífellt þyngri skuldastaða byggingaverktaka gera það að verkum að „brotlending“ er fyrirséð í ákveðnum íbúðaverkefnum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum þess. Í nýrri greiningu frá Acro er sagt líklegt að bankarnir muni…
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að endurskoða verndaraðgerðirnar sem settar voru í nóvember í fyrra vegna kísilmálms, og hittu fyrir Noreg og Ísland, þrátt fyrir að ríkin tvö séu hluti af innri markaðnum. Þetta kemur fram í svari talsmanns framkvæmdastjórnarinnar við fyrirspurn…
„Tilfinningin var hrikaleg þegar maður sá þetta fyrst. Mér leist ekkert á blikuna og hugsaði hvað myndi gerast ef þessi endi slitnaði,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA-11, sem losnaði frá bryggju á föstudagskvöldið.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason – Leggjum grunninn að afurðaárinu 2027 Góður árangur í sauðfjárrækt byggist á mörgum samverkandi þáttum og markvissri bústjórn allt árið um kring. Nú þegar fengitíminn nálgast er kjörið tækifæri til að huga að þeim þáttum sem geta ...
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) vinnur að endurhönnun skýrsluhaldskerfanna og óskar nú eftir bændum og búfjáreigendum í rýnihópa fyrir Huppu, Heiðrúnu og Fjárvís til að hafa áhrif á þróun þeirra. Skýrsluhaldskerfin ge ...
Kanadíski rækjutogarinn MV Northern Osprey III sem breytt hefur verið í fjölveiðiskip hjá Slippnum DNG á Akureyri heldur að líkindum af landi brott í dag. Með búnaði til rækjuveiða er nú kominn búnaður til bolfiskveiða og -vinnslu.
Spesía, nýtt fyrirtæki, hefur hreyft hraustlega við fjármálafyrirtækjunum í umræðunni um kostnað sjóða, enda eru miklir hagsmunir í húfi. Innkoma Spesíu mun líklega hafa veruleg áhrif til lækkunar á kostnaði fjárfesta.
Dótturfélag dótturfélags Íslandsbanka hefur keypt 20 íbúðir í fjölbýlishúsi sem er verið að reisa við Valshlíð og Haukahlíð á Hlíðarenda í Reykjavík. Bankinn hefur fjármagnað framkvæmdirnar og gefið út tryggingabréf upp á 12 milljarða og veðskuldabréf upp á einn milljarð vegna þeirra. Morgunblaðið…
Samkvæmt útkomuspá fyrir Vesturbyggð fyrir 2026 verður niðurstaðan 44 m.kr. lakari en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir. Spáð er afgangi upp á 35 m.kr. í stað 79 m.kr. Tekjur verða 3.826 m.kr. skv. spánni en fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir 3.793 m.kr. Þær verða því heldur hærri í raun. Útgjöldin…
Fjárhagsáætlun næsta árs fyrir Bolungavíkurkaupstað var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn á föstudaginn ásamt tillögum að gjaldskrám. Tillögurnar hafa ekki verið birtar og innihald þeirra ekki skýrt í fundargerð eða fylgiskjölum, en í tilkynningu á vef sveitarfélagsins segir að áhersla…
27 ára karlmaður spyr: „Hversu mikið er ég að spara með því að bíða með að kaupa í t.d. mánuð eða 6 mánuði? Græði ég eitthvað á því að bíða með að kaupa t.d. fína hægindastólinn sem kostar 200þ.kr.?“
Vel á annað hundrað þúsund manns, þar á meðal auðkýfingurinn Elon Musk, hafa skrifað undir áskorun til stjórnar Nvidia um að endurráða Jensen Huang sem...
Byggingafélagið S8 ehf. hefur undanfarið unnið að uppbyggingu á Hlíðarhorni á Hlíðarendasvæðinu. Aðeins 14 af 195 eignum voru þar seldar í sumar, en þá keypti Fastengi ehf., dótturfélag Miðengis ehf., sem er eignarhaldsfélag í 100% eigu Íslandsbanka, 20 íbúðir á reitnum. Íslandsbanki er…
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Engar fréttir fundust. Prófaðu önnur leitarorð eða annan miðil.