Fréttir · Nóvember 2026 · Eldra efni

19. nóvember 2026

114 fréttir birtust þennan dag. Síaðu eftir miðli eða leitaðu í fréttunum.

Allar fréttir sýndar (114)

ruv.is Fjármál og markaðir

Virði hlutabréfa í Anthropic 1.500 milljarðar dollara

Verð hlutabréfa í gervigreindarfyrirtækinu Anthropic endaði 17% hærra en þau voru metin á fyrir opnun markaða. Anthropic var sett á markað í dag og er þar með fyrst stóru gervigreindarfyrirtækjanna til þess. Verð við lokun markaða var 97 dollarar á hlut en Anthropic hafði sjálft metið virði hvers…

mbl.is Fjölmiðlar

Seldu 13.000 bækur á 10 dögum

Nýstofnuð bókaútgáfa, Ævintýri útgáfa, seldi allt upplag nýrrar smásagnaseríu um íslensku jólasveinana á tíu dögum, samtals 13 þúsund bækur.

visir.is

Vettlingar frá Langanesi ganga vel í Sunnlendinga

Atvinnulífið á Þórshöfn snýst ekki bara um sjávarútveg. Þar er einnig flóra smærri fyrirtækja, eins og vettlingagerð, starfsemi sem við eigum ekkert endilega von á að finna í sjávarþorpi á Langanesi lengst norðaustur frá Reykjavík.

ruv.is Orka og stóriðja

Hitaveitan dugar í frostinu á meðan ekkert bilar

Tekist hefur að bæta birgðastöðu af heitu vatni á Akureyri, en í kuldakasti undanfarna daga var notkun umfram framleiðslu. Lítið má þó út af bregða og að sögn forstjóra gæti veturinn orðið erfiður. „Það sýnir sig þetta dæmi núna í gær og fyrradag hvað við erum í rauninni brothætt að þola ekki að…

mbl.is Orka og stóriðja

Fá ekki upplýsingar um norsk gagnaver

Norskir rannsakendur gagnrýna að þeim sé neitað um upplýsingar um gagnaver í landinu og tekur Reynir Jóhannesson, framkvæmdastjóri Samtaka norskra gagnavera, til varna fyrir gagnaveraiðnaðinn, sumt þurfi einfaldlega að liggja í þagnargildi.

ruv.is Fjármál og markaðir

Útlitið gott ef kíkt er undir húddið

Allar forsendur eru til að verðbólga gangi hratt niður í byrjun næsta árs að mati aðalhagfræðings Kviku banka en til þess að það gerist þurfi að færa fórnir. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fór yfir vaxtaákvörðun gærdagsins á peningamálafundi Viðskiptaráðs í morgun. Yfirskrift fundarins var…

mbl.is

Karl Gauti: „Þetta er aðvörun“

Sagði hann að dregið hefði verið fyrir alla glugga lestarinnar svo þeir sem þar sætu sæju ekki hvað væri að gerast fyrir utan.

mbl.is

Ríkisfyrirtæki ekki bundin við 2,5% hækkun

Stjórnir fyrirtækja í eigu ríkisins þurfa sjálfar að meta hvort þær fylgi tilmælum ríkisstjórnarinnar um að halda gjaldskrárhækkunum innan 2,5% á næsta ári.

ff7.is Fjármál og markaðir

Minnir á netbóluna

Anthropic, fyrirtækið sem stendur að baki gervigreindartólinu Claude, var skráð á hlutabréfamarkað í dag eftir stærsta frumútboð sögunnar. Um leið og viðskipti hófust á Wall...

visir.is Samgöngur og flutningar

Flugmenn fresta verkfalli

Icelandair hefur samþykkt ákvörðun Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) að fresta verkfalli sem átti að hefjast á miðnætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Verkfallinu hefur verið frestað um þrjár vikur og hefst á miðnætti 10. desember ef samningar nást ekki. Flugmenn og…

visir.is Verslun og veitingar

Hveiti með möguleg tengsl við danska skandalinn löngu selt

Fyrirtækið sem selur hveiti undir merkjum Kornax segir allar pakkningar af hveiti sem tengist mögulega hveitiskandal í Danmörku löngu seldar og ekki lengur til staðar í verslunum. Þrátt fyrir það standi viðskiptavinum sem eigi umræddar pakkningar til boða að skipta þeim út fyrir nýjar.

ruv.is

Hæstréttur féllst ekki á lögbann í plastpokamáli

Papco hf. lagði Samhenta Kassagerð hf. í Hæstarétti í gær. Síðarnefnda fyrirtækið hafði farið í mál til að staðfesta lögbann við því að Papco héldi áfram framleiðslu, innflutningi og sölu á plastpokum sem fyrirtækið hafði merkt með lýsingarorðinu „STERKIR“. Samhentir höfðu um árabil framleitt og…

mannlif.is Orka og stóriðja

Bensínverð hækkar hér á landi á meðan heimsmarkaðsverð lækkar

Þrátt fyrir lækkun á heimsmarkaðsverði á bensíni frá miðjum september hefur innlent bensínverð, án opinberra gjalda, ekki enn fylgt á eftir, samkvæmt greiningu Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Samkvæmt henni hefur meðaltal lægsta bensínverðs á Íslandi hækkað um 35% á þessu ári. Án opinberra gjalda…

mbl.is

Meirihlutinn í Reykjanesbæ gerir ráð fyrir afgangi

Halli bæjarsjóðs Reykjanesbæjar nam tæpum 10 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hann hafði numið tæpum 103 milljónum króna í lok júní. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins gerir ráð fyrir að bæjarsjóður skili afgangi á árinu í heild.

ruv.is Orka og stóriðja

Undirrita samning um gagnaver á Bakka

Í dag var undirritaður samningur milli Eyrie DC og Norðurþings um 8,2 hektara lóð við Bakka til næstu fimmtíu ára, með möguleika á framlengingu. Á lóðinni á að rísa gagnaver, sem heimildir RÚV herma að sé á vegum tæknirisans Microsoft. „Við höfum unnið að undirbúningi gagnaversins á Bakka í meira…

dv.is

Mígandi tap Manchester United

Manchester United tapaði 18,1 milljón punda á fyrstu þremur mánuðum rekstrarársins, samanborið við 6,6 milljóna punda tap á sama tímabili í fyrra.

vb.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Gert ráð fyrir 9,1% samdrætti útflutningsframleiðslu

Minni aflaheimildir í íslenskum sjávarútvegi hafa leitt til þess að Seðlabanki Íslands hefur lækkað spá sína um útflutningsframleiðslu sjávarafurða verulega. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá bankans er nú gert ráð fyrir 9,1% samdrætti á árinu 2026, en í ágúst var spáð 4,3% samdrætti. Þrátt fyrir…

vb.is

Gagnrýnir kennarasamningana

Formaður Viðskiptaráðs segir hið opinbera hafa grafið undan samningum á almennum vinnumarkaði með miklum launahækkunum.

visir.is Tækni og nýsköpun

Billjóna króna fyrirbærið GTA

Grand Theft Auto 6 er talinn munu eiga stærstu afhjúpun skemmtunarafurð sögunnar. Í senn eskemmtunarafurðarlega dýrasta skemmtanaafurð sögunnar en greinendur telja að tekjurnar á fyrstu viku leiksins í sölu muni ná upp í framleiðslukostnaðinn og töluvert meira en það.

ruv.is Samgöngur og flutningar

Flugmenn og Icelandair funda í karphúsinu

Fundur í kjaradeilu Icelandair og flugmanna í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna í Karphúsinu hófst klukkan eitt í dag. Verkfallsaðgerðir flugmanna hefjast að óbreyttu á miðnætti annað kvöld. Aðgerðirnar ná til leiguflugs félagsins fyrir þriðja aðila. Kjaradeilur Icelandair og FÍA hafa verið á borði…

vikubladid.is Orka og stóriðja

Samningar undirritaðir vegna fyrirhugaðs gagnavers á Bakka

Norðurþing og EyrieDC hafa undirritað lóðarleigusamning vegna fyrirhugaðs gagnavers á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Samningurinn er til 50 ára, með möguleika á framlengingu, og tekur til 8,2 hektara lóðar. Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti lóðarúthlutunina samhljóða 12. nóvember.

visir.is

Fáir vaxtarbroddar í kortunum og hætta á að hagkerfið festist í „miðjumoði“

Veikari útflutningshorfur og skortur á augljósum vaxtarbroddum gætu þýtt að hagkerfið muni festast „í einhverju miðjumoði“ þótt fjárhagsleg staða þjóðarbúsins sé sterk og horfur á lækkandi vöxtum hafi batnað. Aðalhagfræðingur Kviku banka telur að vaxtamunur Íslands við útlönd geti minnkað enn…

ruv.is Orka og stóriðja

Viðgerð á hitaveitukerfi á Akureyri tókst vel

Birgðageymar undir heita vatnið á Akureyri eru komnir upp fyrir öryggismörk. Notkun á heitu vatni var um tíma meiri en framleiðsla og íbúar beðnir að spara það. „Staða geymanna er bara góð og yfir 90%. Við erum komin með fulla stjórn á þessu og getum bætt í ef meira þarf,“ segir Eyþór Björnsson…

visir.is Verslun og veitingar

„Prís elskar að vera á botninum“

Flestir stefna á toppinn, en hjá Prís er því öfugt farið. Frá því verslunin opnaði fyrir tveimur árum hefur hún verið á botninum á verðlagslínuriti ASÍ, ódýrust allra, mánuð eftir mánuð. Í tilefni afmælisins lögðu Birta Ósk Friðbertsdóttir markaðsstjóri Prís og Björk Guðmundsdóttir leikkona land…

mbl.is

Vélfag kvartar til umboðsmanns Alþingis

Vélfag ehf. hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna málsmeðferðar utanríkisráðuneytisins í tengslum við frystingu fjármuna félagsins.

ruv.is

Boðar meiri niðurskurð í fjárlagafrumvarpinu

Fjármálaráðherra segir að fjárlagafrumvarpinu verði breytt svo að markmið um hallalaus fjárlög náist. Breytingarnar verða allar á útgjaldahlið frumvarpsins. Í Peningamálum Seðlabankans í gær kom fram að breyttar forsendur á horfum efnahagsmála, til að mynda minni hagvöxtur en fyrri spá gerði ráð…

mbl.is Ferðaþjónusta

Segist myndu hafa farið aðra leið sjálfur

„Hefði ég farið aðra leið að þessu væri ég ráðherra? Já, ég hefði kannski farið aðra leið. Skil ég þá leið sem ráðherra er að fara? Ég hef skilning á því, en ég hefði farið aðra leið sjálfur, en það er ástæða fyrir því að þessi leið er farin,“ segir Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks…

ruv.is Orka og stóriðja

Óeðlilegt að einn eða tveir flokkar geti selt mikilvæga innviði

Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir óeðlilegt að flokkar í meirihluta hafi heimild til að selja mikilvæga innviði. Fulltrúar Samfylkingar lögðu í vikunni fram tillögu um að það þurfi aukinn meirihluta þegar á að selja mikilvæg innviðafyrirtæki. Þetta er í kjölfar frétta um væntanlega sölu á…

mbl.is Fasteignir og byggingar

Fresta lokun bensínstöðvar

Reykjavíkurborg hefur frestað lokun bensínstöðvar Olís í Álfheimum um eitt ár eða til 1. janúar 2028. Við Álfheima/Suðurlandsbraut hefur verið rekin stór, afkastamikil og fjölsótt bensínstöð í tæp 70 ár

visir.is Fjármál og markaðir

Segja ráðuneytið ekki svara mikilvægum spurningum

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu gera alvarlegar athugasemdir við minnisblað um áhrif hækkunar bankaskatts, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið skilaði til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis á dögunum. Samtökin segja ráðuneytið ekki svara spurningunum um forsendur og heildaráhrif…

bb.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Sóknarhópur Vestfjarða: vill frumvarp um lagareldi

Stjórn Sóknarhóps Vestfjarða skorar á atvinnuvegaráðherra að leggja fram frumvarp um lagareldi á haustþingi 2026. Að Sóknarhópnum standa 96 fyrirtæki á öllum Vestfjörðum. Í ályktun hópsins segir: „Lagareldi er orðið burðarás í atvinnulífi og samfélagsþróun á Vestfjörðum og hefur átt stóran þátt í…

visir.is Verslun og veitingar

Opna verslun á Höfn á laugardag

Krónan opnar nýja matvöruverslun á Höfn í Hornafirði næstkomandi laugardag, 21. nóvember. Nú er unnið hörðum höndum að því að gera allt klárt fyrir fyrstu viðskiptavinina. Við opnunina verða til um 20 ný störf á svæðinu.

visir.is Verslun og veitingar

Icewear frumsýnir glænýja SPORT línu

Icewear frumsýnir Icewear SPORT, nýja og fjölbreytta íþróttalínu sem hönnuð er fyrir alhliða íþróttaiðkun. Nýverið undirrituðu allar deildir Fjölnis í Grafarvogi og handknattleiksdeild Þórs á Akureyri samstarfssamninga við Icewear en meistaraflokkar Fjölnis í fótbolta, handbolta og körfubolta eru…

bbl.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Ný stoð í íslensku atvinnulífi

Á Íslandi er að verða til fiskeldi á landi sem innan fárra ára gæti skapað útflutningsverðmæti á við stórar og rótgrónar undirstöðugreinar þjóðarbúsins. Uppbyggingin er þegar hafin, fjárfestingar nema háum fjárhæðum, tæknin þróast hratt og lax frá íslensk ...

mbl.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Ætla að gera tilraun með nót

Sigurður VE, togari Ísfélags í Vestmannaeyjum, stefnir á að gera tilraun til að veiða síld í nót, en allnokkuð er síðan slík veiðarfæri voru síðast notuð við síldveiðar hér við land. Nótin var færð um borð í skipið síðasta þriðjudag og vakti það eftirtekt fréttaritara blaðsins sem átti leið hjá

bb.is Ferðaþjónusta

Meirihluti landsmanna hlynntur innviðagjaldi á ferðamenn

Gallup lagði fyrir almenning á dögunum um nýtt innviðagjald, sem mælt var fyrir á Alþingi í dag. Spurt var um þá útfærslu sem lögð er til í frumvarpi atvinnuvegaráðherra um málið og hljóðaði spurningin svo: Fyrirhugað er að taka upp sérstakt náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að Gullfossi, Geysi…

mbl.is Fjármál og markaðir

Viðurkenna að bankaskattur geti lent á heimilum

Fyrirhuguð hækkun bankaskatts gæti leitt til hærri útlánsvaxta, lægri innlánsvaxta og aukinna þjónustugjalda fyrir viðskiptavini bankanna. Þetta kemur fram í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.

bbl.is Verslun og veitingar

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til samstarfsfélags við kínverska fatafyrirtækið HLA Group, eitt stærsta fatamerki landsins. Samstarfsélagið mun sjá um sölu og dreifingu á vörum 66°Norður á hinum geysistóra kínvers ...

bbl.is Landbúnaður og matvæli

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15. nóvember næstkomandi um nýtingar- möguleika á lífrænum úrgangi – einkum úr fiskeldi á landi og svínaeldi. Einhverjar tafir verða á skýrsluskilunum þar sem samráðshópurinn sem ...

visir.is Fasteignir og byggingar

„Ef það kemst vatn þá kemst raki og mygla“

Jón Sigurðsson formaður Meistarafélags húsasmiða segir stöðuna á byggingamarkaði erfiða. Það sé bæði byggt of hratt og of hægt og dæmi um það séu hótelturninn á Skúlagötu og Kárnesskóli. Þá gagnrýnir hann að nám iðnaðarmanna hafi verið stytt og segir fjárfesta frekar en byggingameistara stýra því…

visir.is Fasteignir og byggingar

Lækka fasteignagjöld

Bæjarstjórn Árborgar ætlar að lækka fasteignagjöld einstaklinga og fyrirtækja um áramótin. Þá á að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir á næsta ári og byggja viðbyggingu við leikskóla, nýtt skátaheimili, nýtt tjaldsvæði og fleira.

ruv.is Orka og stóriðja

Fresta því að draga úr útblæstri metangass

Lög sem áttu að takmarka losun á metangasi í Evrópusambandinu taka ekki gildi á næsta ári eins og stefnt var að. Gildistöku þeirra hefur verið frestað um tvö ár, til 2029. Lögin hefðu gert fyrirtækjum sem flytja inn kolvatnsefni skylt að mæla og tilkynna um metangas sem hlýst af viðskiptum þeirra…

vb.is

Þyngri brúnin á íslenskum stjórnendum

51% íslenskra stjórnenda eru bjartsýnir á vaxtarhorfur eigin fyrirtækja næstu þrjú árin, samanborið við 83% á Norðurlöndum, samkvæmt stjórnendakönnun KPMG.

heimildin.is Orka og stóriðja

Hugmyndin um Coda Terminal „ekki praktísk eins og er“

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins og formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, segir það ekki „praktíska hugmynd“ að ráðast í stór verkefni eins og Coda Terminal-verkefni Carbfix eins og staðan sé nú. Það þýðir að sautján milljarða styrkur, sem var eyrnarmerktur verkefninu, verður ekki greiddur til…

visir.is Landbúnaður og matvæli

Ætla sér stóra hluti í jarðarberjunum

Helena Hermundardóttir og Knútur Rafn Ármann í Friðheimum stefna á að framleiða um hundrað tonn af jarðarberjum á næsta ári. Þau hafa síðustu 30 árin framleitt tómata í Friðheimum og hafa byggt upp öfluga ferðaþjónustu í kringum ræktunina. Þau segja misjafnt hvað fólki finnst um fullkomna stærð á…

visir.is Fasteignir og byggingar

Hægist enn frekar á fasteignamarkaði

Þinglýstir kaupsamningar voru um tuttugu prósent færri í október í ár miðað við 2025. Hægst hefur verulega á fasteignamarkaði síðastliðin tvö ár. Tæplega 85 prósent eldri íbúða seljast undir ásettu verði.

mbl.is Fasteignir og byggingar

ÍAV hífðu eigið féð upp eftir á

Eigið fé Íslenskra aðalverktaka var neikvætt sem nam yfir tveimur milljörðum króna þegar Þjóðarhöll ehf. tilkynnti að gengið hefði verið að tilboði fyrirtækisins sem það lagði fram til byggingar nýrrar þjóðarhallar í Laugardal.