Fréttir · Nóvember 2026 · Eldra efni

20. nóvember 2026

100 fréttir birtust þennan dag. Síaðu eftir miðli eða leitaðu í fréttunum.

Allar fréttir sýndar (100)

ruv.is Tækni og nýsköpun

Urgur vegna útboðs Stafrænnar heilsu

Í næstu viku rennur út útboðsfrestur á einu stærsta verkefni sem ríkið hefur ráðist í á þessu sviði. Það heitir Stafræn heilsa og miðar að því að innleiða stafrænar lausnir í heilbrigðisgeiranum og ná fram hagræðingu. Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu, segir markmiðið að auka…

mbl.is Ferðaþjónusta

Hefur afleiðingar langt út fyrir reksturinn

Það er deginum ljósara að ef frumvörp ríkisstjórnarinnar um auknar álögur á ferðaþjónustufyrirtæki, sem nú eru til meðferðar á Alþingi, ná fram að ganga mun það hafa veruleg áhrif á samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar.

ruv.is Orka og stóriðja

Suðurnesjalína 2 spennusett

Spennu var hleypt á Suðurnesjalínu tvö í dag, rúmum tveimur áratugum eftir að undirbúningur að henni hófst. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar áfanganum og forstjóri Landsnets segir þetta auka raforkuöryggi. Langur aðdragandi að Suðurnesjalínu 2 Suðurnesjalína 2 er 30 kílómetra löng 220 kílóvolta…

visir.is Tækni og nýsköpun

Kennir 1984 um tveggja milljarða króna rafmyntasvik

Mörður Áslaugarsson framkvæmdastjóri vefhýsingarfyrirtækisins 1984 segir tölvuárásina sem lamaði kerfi félagsins vera af stærðargráðu þjóðríkis. Stofnandi rafmyntar kennir á sama tíma 1984 um að rafmynt sín hafi hrunið um meira en 99 prósent í dag.

mbl.is Fjármál og markaðir

Telur tímabært að lækka vexti í febrúar

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands, telur að tímabært verði að huga að lækkun stýrivaxta í febrúar þegar peningastefnunefnd Seðlabankans tekur næstu vaxtaákvörðun. Hann segir ýmsa hagvísa benda til þess að vaxtalækkanir séu fram undan á næsta ári.

ruv.is Fasteignir og byggingar

Hlaupa frá verkalýðsfulltrúum og fela sig

Slæm framkoma við starfsfólk í byggingageiranum er stórt vandamál, að sögn Ólafs Oddgeirs Viðarssonar, húsasmíðameistari og eftirlitsfulltrúi í vinnustaðaeftirliti Byggiðnar, og bitnar langverst á erlendu starfsfólki. Launaþjófnaður og brot á kjarasamningum eru algeng og fjölmargir starfsmenn sem…

visir.is Fjármál og markaðir

Annað félag tekið af markaði

Stjórn Klappa hf. samþykkti á stjórnarfundi í dag að leggja til við hluthafa félagsins að samþykkja afskráningu hlutabréfa félagsins úr viðskiptum á Nasdaq First North Growth Market Iceland. Félagið er annað félagið í vikunni til þess að tilkynna áform um afskráningu af vaxtarmarkaðnum First North…

mannlif.is Ferðaþjónusta

Ógnvekjandi umfang tölvuárásar á íslenskt hýsingarfyrirtæki

Stjórnendur íslenska hýsingarfyrirtækisins 1984 hafa stöðvað alla þjónustu þess tímabundið eftir umfangsmikla og alvarlega tölvuárás á innviði fyrirtækisins. Fyrstu niðurstöður rannsóknar benda til þess að um vel skipulagða og tæknilega háþróaða árás sé að ræða. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir…

bb.is

Leggja til einföldun á skattalegri umgjörð íþróttastarfsemi

Lögð eru til einfaldari skattskil vegna lágra aukatekna upp að 3,5-4 milljóna króna á ári og ýmislegt fleira í tillögum starfshóps sem fór yfir skattaleg réttindi og skyldur þeirra í íþróttastarfi. Starfshópurinn hefur skilað skýrslu um málið. Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði starfshópinn til…

heimildin.is Fjármál og markaðir

Anthropic-útboðið dugði ekki til að róa markaðina

Hlutabréf tæknifyrirtækja féllu hratt í dag og drógu hlutabréfamarkaði víða um heim niður. Sterk innkoma gervigreindarfyrirtækisins Anthropic á hlutabréfamarkað dugði ekki til að slá á vaxandi áhyggjur af gríðarlegum fjárfestingum í greininni og háu verðmati fyrirtækja. Hlutabréf í Anthropic…

mbl.is

„Engar stórar fréttir í þessu frumvarpi“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir þær breytingar sem boðaðar eru í frumvarpi Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra séu fyrst og fremst til þess fallnar að einfalda líf einyrkja og fólks sem tekur að sér tilfallandi verkefni.

mbl.is

Vill bera saman fundi ráðherra með stjórnum ríkisfyrirtækja

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vill fá fram hversu oft fjármála- og efnahagsráðherra og starfsmenn ráðuneytisins funduðu með stjórnum eða stjórnarformönnum fimm ríkisfyrirtækja á árunum 2021 til 2026.

ruv.is Fasteignir og byggingar

Eigendur Valaskjálfar enn tilbúnir til að semja um leiguverð

Eigandi Valaskjálfar á Egilsstöðum segir að möguleiki á að sveitarfélagið leigði sal hússins hafi ekki verið útræddur. Endanlegt leiguverð hafi aldrei verið nefnt. Eigendur láta nú hanna smáherbergjahótel inn í salinn en eru þó enn tilbúnir til viðræðna við sveitarfélagið. Salurinn í Valaskjálf…

vikubladid.is Sjávarútvegur og fiskeldi

Glæsilegum áfanga náð um borð í Northern Osprey III

Síðastliðinn þriðjudag sigldi kanadíski togarinn MV Northern Osprey III úr höfn frá Akureyri áleiðis til Kanada eftir viðamiklar og farsælar breytingar hjá okkur í Slippnum DNG. Skipinu hefur nú verið breytt úr rækjutogara í fullkomið rækju- og bolfiskveiðiskip með nýrri bolfiskvinnslulínu, en…

mbl.is Fjármál og markaðir

Miklar sveiflur á gengi Anthropic

Gengi gervigreindar fyrirtækisins Anthropic hefur tekið dýfu í viðskiptum fyrir opnun markaða á öðrum viðskiptadegi með hlutabréf fyrirtækisins. Kemur þetta í kjölfar hækkunar á fyrsta degi viðskipta með bréfin, en virði þeirra er enn yfir útboðsgengi sínu.

visir.is Orka og stóriðja

Draga verði lærdóm af þrautagöngunni

Suðurnesjalína 2 verður spennusett klukkan fjögur síðdegis. Mikil þrautaganga er að baki framkvæmdinni og segir forstjóri Landsnets að draga verði lærdóm af ferlinu sem hafi tekið allt of langan tíma.

ruv.is Fjármál og markaðir

Áhugi erlendra fjárfesta var minni en vonast hafði verið til

Viðskipti með hlutabréf Bláa lónsins hófust á aðalmarkaði Kauphallarinnar í morgun. Hlutabréf félagsins hafa fallið um tíu krónur frá því markaðurinn opnaði. Grímur Sæmundsen stofnandi og stjórnarformaður félagsins, segir að gengi félagsins geti og muni sveiflast upp og niður af ýmsum ástæðum. Það…

visir.is

„Núllið stendur, núllið heldur“

Ríkisstjórnin ætlar að skila hallalausum fjárlögum á næsta ári án þess að afla frekari tekna en gert var ráð fyrir í haust. Þetta segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sem kallar boðaðan niðurskurð eðlilegar tilfæringar.

mbl.is Tækni og nýsköpun

„Algjört brjálæði“

Gervigreindarfræðingurinn Jacob Coxon segir það „brjálæði“ að þróun jafn öflugrar tækni og gervigreindar sé í höndum stórfyrirtækja sem rekin eru í hagnaðarskyni.

ff7.is Fjármál og markaðir

Bláa lónið komið á Aðalmarkaðinn

Hlutabréf Bláa lónsins voru tekin til viðskipta í Kauphöllinni í morgun. Bláa lónið tilheyrir neysluvörugeiranum (e. Consumer Discretionary) og er 39. félagið sem tekið er til viðskipta á mörkuðum Nasdaq Nordic og Baltic í ár.

visir.is Verslun og veitingar

Innkalla hveiti vegna myglueiturs yfir mörkum

Matvælastofnun varar við hveiti vegna myglueiturs sem er yfir mörkum. Hveitið er allt frá sama framleiðandanum, danska fyrirtækinu Valsemöllen A/S. Það hefur verið flutt inn og selt undir þremur vörumerkjum. Þau eru Kornax, First Price og Euroshopper. Innköllunin snýr að hveiti sem er með best…

mannlif.is

Kaupmáttur jókst um 5,8 prósent frá upphafi kjarasamningalotunnar

Kaupmáttur grunntímakaups hefur aukist um 5,8 prósent frá því núverandi kjarasamningalota hófst í mars 2024. Á sama tímabili hækkaði grunntímakaup á vinnumarkaðnum í heild um 18,7 prósent en verðlag um 12,2 prósent. Þetta kemur fram í haustskýrslu kjaratölfræðinefndar 2026, þar sem farið er yfir…

ruv.is Tækni og nýsköpun

Mjög alvarleg tölvuárás frá fjársterkum aðilum

Framkvæmdastjóri 1984 ehf. segir tölvuárás á fyrirtækið mjög alvarlega og augljóst að fjársterkir aðilar standi að baki henni. Fyrirtækið, sem hýsir stóran hluta íslenskra vefsíðna, hefur lokað fyrir alla þjónustu til að tryggja öryggi viðskiptavina. „Við byrjum á algerri lokun en hún verður stutt…

visir.is

Fimmtán þúsund vélmenni stífla röðina á Foo Fighters

Netárás hefur sett strik í reikninginn í miðasölu á tónleika bandarísku rokkhljómsveitarinnar Foo Fighters en miðasalan hófst í morgun á Tix. Forsvarsmaður Senu Live biðlar til kaupenda að sýna biðlund, verið sé að koma röð og reglu á fimmtán þúsund vélmenni sem komið hafa sér fyrir í röðinni og…

mbl.is Tækni og nýsköpun

1984 stöðvar þjónustu eftir tölvuárás

Íslenska vefhýsingarfyrirtækið 1984 ehf. hefur stöðvað alla þjónustu sína tímabundið í kjölfar umfangsmikillar tölvuárásar. Fyrirtækið hyggst koma tölvupósti og nafnaþjónustu aftur í gang fljótlega en óvíst er hvenær önnur þjónusta verður endurheimt.

sa.is

Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar 2026

Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar 2026 fjallar um þróun launa, kaupmáttar og vinnumarkaðar. Ný greining varpar ljósi á launahækkanir umfram kjarasamninga.

ruv.is Tækni og nýsköpun

Slökkva á 1984 vegna netárásar

Stjórnendur nethýsingarfyrirtækisins 1984 ákváðu í dag að stöðva tímabundið alla þjónustu fyrirtækisins. Þetta gerðu þeir vegna umfangsmikillar og alvarlegrar tölvuárásar á innviði fyrirtækisins í tölvutækni. Í tilkynningu frá 1984 og CERT-IS segir að umfang árásarinnar sé enn til rannsóknar…

visir.is

Enn hækka laun hjá hinu opinbera hraðar en á almennum markaði

Hækkun vísitölu grunntímakaups mældist 18,4 prósent á almennum markaði frá því að kjarasamningar tóku gildi í febrúar 2024 og þar til í júní 2026. Á sama tíma hækkaði vísitalan um 19,6 prósent hjá ríki, 18,8 prósent hjá Reykjavíkurborg og 20,1 prósent hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur.

visir.is

64 ár milli yngsta og elsta framkvæmdastjórans

Fleiri framkvæmdastjórar Framúrskarandi fyrirtækja eru sjötugir eða eldri en eiga þrítugsafmælið fram undan. Sá yngsti er 24 ára og sá elsti 88 ára. Rétt um 2,5% fyrirtækja um allt land komast á listann en hann var kynntur í október síðastliðinn.

ruv.is

Stefna að því að afturkalla Brexit - að hluta til

Útlit er fyrir að leiðtogafundur Evrópusambandsins og Bretlands í Brussel í dag skili raunverulegum árangri, segja embættismenn frá leiðtogaráði ESB sem ræddu við blaðamenn í morgun. „Við erum að búast við að leiðtogarnir staðfesti niðurstöðu í mikilvægum viðræðum sem hafa átt sér stað að…

vb.is Orka og stóriðja

Suðurnesjalína 2 spennusett í dag

Suðurnesjalína 2 verður spennusett klukkan 16 í dag en með línunni fá Suðurnes aðra tengingu við flutningskerfi raforku, sem eykur afhendingaröryggi og flutningsgetu til og frá svæðinu. Línan styrkir þannig grunn að daglegu lífi, atvinnuuppbyggingu, verðmætasköpun og orkuskiptum á Suðurnesjum, að…

bbl.is Orka og stóriðja

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Fyrir ári síðan eða svo var hér baulað nokkuð á áherslu ríkisstjórnarinnar á uppbyggingu fleiri gagnavera hérlendis. Þá voru ekki orðin áberandi í öðrum löndum þau andmæli við gagnaverum sem nú eru uppi bæði austan hafs og vestan. Ein skýringin á því að T ...

mannlif.is Fjármál og markaðir

Skiptum lokið á þrotabúi Talays

Skiptum á þrotabúi Talays ehf., sem rak pítsustað í Mathöll Höfða, lauk 11. nóvember. Lýstar kröfur í búið námu 17.728.441 krónu samkvæmt tilkynningu um skiptalok í Lögbirtingablaðinu Héraðsdómur Reykjavíkur tók bú félagsins til gjaldþrotaskipta með úrskurði 3. júní 2026. og var skiptastjóri…

bbl.is Landbúnaður og matvæli

Stjórnvöld í lið með Riddurum rauða drekans!

Ein spurning fylgdi okkur á alla fundi í hringferð Bændasamtakanna nú í nóvember og hún laut að því hver tæki við. Bóndinn sem hyggst bregða búi veltir fyrir sér hvort einhver komi í hans stað og unga fólkið sem vill hefja búskap spyr hvort dæmið geti yfi ...

ruv.is Orka og stóriðja

Olíufélögin skuldi neytendum verulega verðlækkun

Lækkun á heimsmarkaðsverði hefur ekki skilað sér í bensínverði á Íslandi samkvæmt greiningum ASÍ og FÍB. „Allar tölur sýna okkur að álagningin er bara í hæstu hæðum um þessar mundir og þessi félög skulda neytendum verulega lækkun,“ segir Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda…

ruv.is

Karlar eru líklegri til að vera undir lágtekjumörkum en konur

Um 8,5 prósent eru undir lágtekjumörkum samkvæmt nýrri greiningu Hagstofunnar á lífskjörum landsmanna. Samtals eru það 34 þúsund einstaklingar. Þá er miðað við fólk sem býr á heimilum þar sem ráðstöfunartekjur eru undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna í landinu að teknu tilliti til…

vb.is

Kostnaður og verðbólga vega þungt

Íslenskir stjórnendur telja ytri rekstrarþætti hafa meiri áhrif á velgengni fyrirtækja sinna næstu þrjú árin en stjórnendur á Norðurlöndum.

mbl.is

„Augljóslega ekki hálaunafólk“

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt stjórnarfrumvarp um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld fyrir Alþingi.

mannlif.is Fjármál og markaðir

Segir tryggingafélögin „gambla“ með fé úr bótasjóðum

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka og fyrrum ráðherra, kallaði eftir því á Alþingi í gær að bótasjóðir tryggingafélaganna yrðu gerðir upp. Hann gagnrýndi jafnframt eftirlit Seðlabankans með félögunum og lagði til að fjármunir sem stæðu eftir við uppgjör gætu meðal annars nýst til að…

visir.is Orka og stóriðja

GeoSilica hlýtur nýsköpunarverðlaun Samorku

GeoSilica hlýtur Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026 fyrir GeoStep-aðferðina, sem fjarlægir kísil úr jarðhitavökva áður en hann fellur út í kerfum jarðvarmavirkjana. Með aðferðinni er dregið úr útfellingum og viðhaldsþörf um leið og kísillinn er nýttur í verðmætar afurðir.

vb.is

Píratar í jakkafötum

Árin tvö hjá Viðreisn í ríkisstjórn hafa staðfest kenninguna um að flokkurinn sé ekkert annað en Píratar í jakkafötum.

visir.is

Margir í faðmlögum við vinnuna

Nei, við erum ekki að fara að tala um kossa eða faðmlög starfsmanna í Hagaskóla. En við erum þó að fara að ræða fréttatengd mál og nokkur góð ráð.

heimildin.is Fjármál og markaðir

Óttast bólu en slást um Anthropic

Bandaríska gervigreindarfyrirtækið Anthropic sló í gær met geimferðafélagsins SpaceX með stærsta frumútboði sögunnar, þegar viðskipti hófust með hlutabréf í félaginu. Anthropic, sem meðal annars heldur úti spjallmenninu Claude, er fyrst stóru fyrirtækjanna sem sérhæfa sig í þróun fullkomnustu…

mbl.is Fasteignir og byggingar

Vaxandi vandræði eru hjá verktökum

Fjárhagsstaða margra verktakafyrirtækja er orðin afar viðkvæm vegna hárra vaxta og hægari sölu nýrra íbúða. Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir það mikil vonbrigði að Seðlabankinn hafi ákveðið að halda meginvöxtum óbreyttum í 8%.