Fréttir · Nóvember 2026 · Eldra efni

22. nóvember 2026

27 fréttir birtust þennan dag. Síaðu eftir miðli eða leitaðu í fréttunum.

Allar fréttir sýndar (27)

visir.is Fasteignir og byggingar

Byggingargeirinn eigi skell í vændum

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að staðan í byggingariðnaði eigi eftir að versna á næstu mánuðum. Verst sé ástandið í íbúðauppbyggingu. Nýjar íbúðir seljist nú á tvöfalt lengri tíma en fyrir tveimur árum.

visir.is

„16.900 krónur fyrir tónleika sem maður sér ekki!“

Eyþór Eðvarðsson, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, gagnrýnir að tónleikagestir í Eldborg í Hörpu sjái ekki á sviðið þegar þeir sem sitja fyrir framan standa upp og dansa. Hann lýsir upplifun sinni í færslu á Facebook.

vb.is Verslun og veitingar

Verðhækkun þrátt fyrir lækkun

Fyrir ríflega viku birti ASÍ verðlagskönnun sem fékk töluverða fjölmiðlaumfjöllun. Í stuttu máli var niðurstaðan sú að umtalsvert hefði dregið úr hækkunum á matvöru undanfarna mánuði.

heimildin.is Fjármál og markaðir

Hvað kostar „kólnun“ Seðlabankans?

Hávaxtastefna Seðlabankans er helsta vopnið sem hann beitir í von um að ná verðbólgunni niður. Háir vextir eiga að draga úr neyslu og fjárfestingum skuldugra heimila og fyrirtækja sem fjármagna sig í krónuhagkerfinu. Það dregur svo úr verðmætasköpuninni (hagvextinum) og eykur atvinnuleysi. Háir…

visir.is Lyf og líftækni

Yrði „afar hissa“ ef kröfu Janssen um lögbann yrði ekki hafnað

Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech, segist verða „afar hissa“ ef bandarískur dómstóll hafnar ekki kröfu Janssen um lögbann við markaðssetningu á hliðstæðu Simponi, en niðurstöðu er að vænta innan fárra vikna. Á sama tíma og fjárfestar hafa áhyggjur af lausafjárstöðu Alvotech fullyrðir hann…

visir.is

Veikindafjarvera talin kosta tólf milljarða á ári

Veikindafjarvera kostar sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu 12 milljarða króna á ári og væri hægt að lækka þann kostnað um 5,4 milljarða króna árlega með því að lækka veikindahlutfallið um þrjú prósentustig.

mbl.is Samgöngur og flutningar

Sótthreinsun verður áfram í Leifsstöð

Samningur Mast og Isavia um sótthreinsun á veiðibúnaði einstaklinga sem koma til Íslands rennur út um áramót. Mast leitar nú að nýjum samstarfsaðila til að annast verkið. Heimilt er að koma með ósótthreinsaðan búnað en skylt að sótthreinsa áður en hann er notaður.