Gleði í kringum endurkomu Jensens Huangs virðist hafa verið skammvinn en tæknifyrirtæki tóku dýfu á ný við opnun kauphalla í dag eftir mikla hækkun á þriðjudag. Huang er forstjóri tæknifyrirtækisins Nvidia. Hann var rekinn fyrir um tveimur vikum vegna framhjáhalds með hugsanlegum kínverskum…
Það er með ólíkindum hvað sumt fólk er afkastamikið og duglegt. Alltaf mikið að gera hjá því en samt svo bóngott, gott að leita til þess og einhvern veginn ná þau að klára verkefni sem þó bætast við þétta dagskrá.
Lyfjafyrirtækið Coripharma fær hæstu upphæð þessa árs í sérstakan skattafrádrátt vegna nýsköpunar, eða samtals 385 milljónir. Í heildina er mikill samdráttur á þeim skattafrádrætti sem fyrirtæki fá á þessu ári og nemur lækkunin 47% yfir tvö ár.
Kínverska tæknifyrirtækið Huawei var sakfellt af kviðdómi alríkisdómstóls í New York í gær, í umfangsmiklu bandarísku sakamáli, fyrir að hafa blekkt og sagt ósatt um bankaviðskipti við Íran og stolið viðskiptaleyndarmálum frá bandarískum fyrirtækjum.
Fangaklefar í gamla Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg breytast senn í vinnustofur og verslun fyrir lista- og handverksfólk. Það hillir undir lokin á endurbótunum og aðstandendur stefna á að opna í febrúar. Nú geta allir sótt um að komast að í klefunum og faghópur velur úr. Hegningarhúsið var reist…
Icelandair ætlar að hefja beint flug frá Akureyri til Tenerife næsta haust, vikulega á þriðjudögum frá 19. október til 18. apríl vorið eftir. Ætla mætti að það félli í góðan jarðveg hjá heimamönnum sem jafnan kalla eftir auknu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. En svo var ekki. Ákvörðun…
Verkamenn í fataiðnaði í Bangladess fengu í dag samþykkta 36% hækkun á lágmarkslaunum. Starfsfólkið fór í verkfall 15. nóvember og hefur mótmælt vikum saman. Fjöldi fataverksmiðja í Bangladess þurfti að loka vegna verkfallsins. Starfsfólkið krafðist þess upphaflega að fá 30 þúsund taka í…
ÞG verktakar fengu ekki að leggja fram tilboð í hönnun og byggingu Þjóðarhallar þar sem stálvirkjameistari, sem tilgreindur var í umsókn félagsins í forvali, uppfyllti ekki skilyrði um tveggja ára starfsreynslu sem meistari. Ekki lá fyrir á þeim tíma hvort aðkomu stálvirkjameistara þyrfti að…
Engar fréttir fundust. Prófaðu önnur leitarorð eða annan miðil.