Hafna kröfu um stöðvun útboðs vegna hjúkrunarheimilis
Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kröfu ÞG verktaka ehf. um að innkaupaferli Garðabæjar vegna uppbyggingar nýs hjúkrunarheimilis og þjónustumiðstöðvar í Vetrarmýri verði stöðvað um stundarsakir.
Fréttir · Nóvember 2026 · Eldra efni
83 fréttir birtust þennan dag. Síaðu eftir miðli eða leitaðu í fréttunum.
Allar fréttir sýndar (83)
Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kröfu ÞG verktaka ehf. um að innkaupaferli Garðabæjar vegna uppbyggingar nýs hjúkrunarheimilis og þjónustumiðstöðvar í Vetrarmýri verði stöðvað um stundarsakir.
Heiðrún Haraldsdóttir, fjármálastjóri Fossa, mun láta af störfum hjá bankanum í lok mánaðar. Hún verður fjórði stjórnandinn sem yfirgefur fyrirtækið á árinu.
Málið á rætur að rekja til þess að greiðsla að fjárhæð 997.500 Bandaríkjadalir, sem þá jafngilti tæpum 140 milljónum króna, barst inn á gjaldeyrisreikning félagsins í september árið 2022. Greiðslan var að mati bankans í ósamræmi við áður gefnar upplýsingar um mánaðarlega veltu félagsins.
Gjaldþrot merkjavöruverslunarinnar Collage The Shop við Hafnartorg, sem rekin var í rúmlega ár, nam rétt rúmlega 131 milljón króna.
Læknar eru sem fyrr fyrirferðarmestir á lista Viðskiptablaðsins yfir þau samlags- og sameignarfélög sem greiddu mestan tekjuskatt í fyrra.
Samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins kannar hvort heimilt sé að selja bjór í Bláfjöllum. Þorvaldur Daníelsson formaður nefndarinnar segir málið tengjast hugmyndum um að bjóða út rekstur veitingasölunnar í fjallinu.
Rúmlega 200 íbúðir hafa selst á þéttingarreitum nærri miðborg Reykjavíkur frá síðustu áramótum.
Fjórðungur allra launagreiðslna í Vesturbyggð kemur úr fiskeldi, en á Vestfjörðum í heild kemur tíunda hver króna greiddra launa úr greininni. Þá eru ótalin afleidd störf.
Forstjóri Haga segir að verðstöðvunin á mjólk standi í um fimm til sex mánuði en ekki átta, eins og verðlagsnefnd búvara heldur fram.
Bóksala í haust er meiri en verið hefur undanfarin ár og bóksalar eru bjartsýnir á sölu fyrir jólin. Samkeppni á íslenskum bókamarkaði hefur aukist á undanförnum árum.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir 2028–2030.
Borgin segist ekki hafa upplýsingar umfram aðra til að leggja mat á hvaða áhrif eigendabreyting hjá Ljósleiðaranum hefði á Sýn.
Sidy Barhama Ndiaye gæti gengið til liðs við Liverpool þegar hann nær 18 ára aldri.
Breytingin gerir Bernard Arnault, ríkasta manni Evrópu, kleift að stýra LVMH til ársins 2044.
„Afkoma Ísfélagsins á þriðja ársfjórðungi var viðunandi í ljósi minni umsvifa m.v. sama tímabil árið á undan.“
Bæjarráð Hveragerðis gerir alvarlegar athugasemdir við tæknilega útfærslu reiknilíkans í frumvarpi innviðaráðherra um fasteignaskatt á orkumannvirki, en frumvarpinu, verði það að lögum, er ætlað að tryggja að skatttekjur skili sér til þeirra nærsamfélaga sem bera umhverfis-, sjónræn og…
Mesta breytingin var á gengi Alvotech sem lækkaði um 10,6% eftir tilkynningu um bráðabirgðalögbann í Bandaríkjunum.
Þegar hjón gista á hótelherbergi í tvær nætur teljast gistinæturnar fjórar og fjögurra...
Samtals hafa Stoðir nú bætt við sig 4,3% hlut í Ásum fyrir 1,2 milljarða króna í mánuðinum.
Meirihlutinn í Reykjavík vill hækka verð á stökum sundmiða fyrir fullorðna úr 1.500 krónum í 2.800 krónur. Verði nýja gjaldskráin samþykkt tekur hún gildi 8. desember. Borgin lækkaði í vor verð á árskorti fullorðinna úr 48 þúsund krónum í 34 þúsund krónur. Bjarni Guðjónsson, formaður íþrótta- og…
„Með breytingum á ráðningarkerfi borgarinnar verður komið í veg fyrir að slíkt geti viðgengist áfram,“ segir í bókun meirihlutans.
Liðið hafnaði í fjórða sæti í Lúxemborg eftir að hafa unnið til gullverðlauna í báðum keppnisgreinum.
Landsnet hefur skilgreint átta vaxtarsvæði þar sem eftirspurn er eftir orku og tækifæri eru til orkuöflunar. Þá gerir Landsnet ekki ráð fyrir að tengja fleiri en 3-4 vindorkuver við flutningskerfið á næstu 10-15 árum, mun færri en áform eru um.
„Markmið okkar er að gera samtökunum kleift að koma Hugsuðum aftur af stað og efla félagsstarf fyrir einhverft fólk.“
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund miðvikudaginn 2. desember til að fjalla um verklag fjármála- og efnahagsráðherra í tengslum við málefni Landsvirkjunar.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Grýtubakkahrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Skælu. Með breytingunni verður heimilt heildarbyggingarmagn á svæðinu aukið úr 7.000 fermetrum í 8.100 fermetra til að skapa svigrúm fyrir fyrirhugaða stækkun Höfða Lodge.
Forstöðumaður skuldabréfamiðlunar Arion banka telur líklegra að Seðlabankinn kunni að hefja vaxtalækkanir fyrr en ella í ljósi lækkandi verðbólgu.
Fjármálaráðuneytið segir að í ljósi óvissu sé ekki gert ráð fyrir mögulegu eiginfjárframlagi í forsendum fjárlagafrumvarpsins.
Norska lággjaldaflugfélagið Norse Atlantic greindi frá því í dag að það rambaði á barmi gjaldþrots og aflýsti öllum flugferðum dagsins.
Aukinn hraði netárása gefur fyrirtækjum og stofnunum skemmri tíma til að bregðast við.
Forsvarsmenn Nvidia hafa ákveðið að hætta að selja háþróuðustu tölvuflögur fyrirtækisins til Suðaustur-Asíu. Er það liður í að reyna að koma í veg fyrir að Kínverjar komi höndum yfir bandaríska tækni. Þá hefur litið dagsins ljós að háttsettur yfirmaður hjá fyrirtækinu er giftur konu sem starfaði…
Fiskistofa hefur reiknað út gjald vegna fiskeldis í sjó fyrir árið 2027. Er það 42,70 kr á hvert kíló slátraðs lax og 21,35 kr á hvert kíló slátraðs regnbogasilungs. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem Fiskistofa kveðst leggja gjaldið á tvisvar sinnum á ári, 15. ágúst vegna tímabilsins 1. janúar…
Svartsýni íslenskra neytenda hefur ekki mælst meiri í sextán ár en væntingavísitala Gallup féll um nærri 17 stig á milli mánaða í nóvember. Vísbendingar um að einkaneyslan, sem hefur að stórum hluta borið uppi þróttlítinn hagvöxt síðustu ársfjórðunga, sé að gefa enn frekar eftir koma fram á sama…
„Slysið var hörmulegt og auðvitað hefur það mikil áhrif á alla sjómenn,” sagði Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey sem var 45 sjómílur frá slysstaðnum er Jökull ÞH fórst í gær.
Allt stefnir í að Spánverji taki við stöðu bankastjóra Seðlabanka Evrópu í febrúar á næsta ári. Þá lætur Christine Lagarde af störfum. Hún hefur stýrt bankanum síðan 2019. AFP fréttaveitan hefur eftir ónefndum diplómötum innan Evrópusambandsins að Hernandez de Cos taki við af henni.
Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa veitt fyrirtækinu SpaceX, sem er í eigu Elons Musk auðugasta manns heims, leyfi til að setja allt að milljón gervihnetti á braut um jörðu. Slíkt myndi fimmtíufalda fjölda gervihnatta en leyfið var veitt án nokkurs konar rannsóknar á mögulegum áhrifum þessa fjölda…
Engu að síður í nægu að snúast hjá Kælismiðjunni Frost á Akureyri og fiskeldið hefur komið sterkt inn
Nvidia fyrirskipar samstarfsaðilum sínum að stöðva sendingar til Malasíu, Singapúr, Taílands og Indónesíu.
Í bráðabirgðakostnaðarmati er miðað við að höfuðstóll námslána verði lækkaður um 1,5 milljónir króna hjá hverjum lánþega sem á rétt á ívilnuninni.
Vaxandi spenna í Mið-Austurlöndum hefur aukið óvissu á alþjóðlegum olíumörkuðum eftir að írönsk stjórnvöld greindu frá því að olíuskip hefðu rekist á tundurdufl á Hormússundi. Fréttirnar berast í kjölfar þess að Hútar í Jemen lýstu yfir ábyrgð á árás á stærstu olíuhreinsistöð Sádi-Arabíu. Óttast er…
„Það er nóg fram undan hjá okkur,“ segir Atli Steinn Jónsson í Kælingu Víkurafli, sem þróað hefur nýja umhverfisvæna og orkusparandi kælilausn. Útgerðir haldi hins vegar að sér höndum vegna innlendra og erlendra ástæðna.
Fasteignasalan Helgafell hefur auglýst íbúðir í nýbyggingu í Hafnarfirði á tuttugu prósenta afslætti í eina viku í tilefni svarts föstudags. Formaður félags fasteignasala segist telja um frumlega markaðssetningu að ræða og bendir á að undanfarið hafi færst í aukana að verktakar lækki verð á…
Fátt þykir benda til þess að leiðtogar Evrópusambandsríkjanna nái samkomulagi um næstu sjö ára fjárhagsáætlun ESB á aukafundi sem hófst í Brussel í morgun. Tekist er á um skiptingu fjármuna, framtíðarstefnu sambandsins og stuðning við Úkraínu.
„Metal er einmitt sú tegund fyrirtækis sem leitarsjóðalíkanið er hannað fyrir.“
Agnar H. Johnson, formaður stjórnar Viðreisnar á Seltjarnarnesi, hefur lagt fram hugmyndir um byggingarlóðir á grænum síðum sem njóta verndar. Hann nefnir sölu lóða sem mögulega leið til að draga úr skuldsetningu bæjarins. Bæjarstjóri Seltjarnarness úr meirihluta Sjálfstæðisflokks boðaði í gær…
Hlutabréfaverð Alvotech hefur lækkað um 15,35% í 147 milljón króna viðskiptum það sem af er degi.
Áætlaðar tekjur Hafnasjóðs Ísafjarðarbæjar ársins 2027 nema 935,8 m.kr. og lækka um 10 m.kr. frá áætlun 2026. Gjöld eru áætluð 712,5 m.kr. og hækka um 60,7 m.kr. Rekstrarafgangur verður samkvæmt þessu 223,3 m.kr. Hann er áfram jákvæður, en lækkar um 70,8 m.kr. frá áætlun 2026. Hagnaðurinn verður um…
Dómstóll í Virginíuríki hefur sett bráðabirgðabann á fyrirhugað hliðstæðulyf Alvotech við Simponi og Simponi Aria. Það var lyfjarisinn Janssen sem fór fram á bannið en málið varðar einkaleyfi sem lýtur að síunarferli í framleiðslu. Hlutabréf í Alvotech féllu um rúmlega 11 prósent í kauphöllinni í…
Miðað við ásett verð nemur afslátturinn ríflega tuttugu milljónum króna.
Eigið fé Seðlabankans var 77 milljarðar króna í lok síðasta árs, en hefur minnkað töluvert á þessu ári og var í október líklega í námunda við 18 milljarða. Til samanburðar er eiginfjármarkmið Seðlabankans 150 milljarðar króna.
Tollarnir gætu hleypt nýju lífi í viðskiptadeilur Bandaríkjanna við bæði bandamenn og andstæðinga.
„Það er erfitt að finna viðeigandi orð á stundu sem þessari. Þau virðast máttvana. Útgerð Jökuls er lítil og atburðir gærkvöldsins snerta okkur öll djúpt,“ segir GPG Seafood.
Verðbólga mælist nú 5,8 prósent, sem er litlu minna en hún mældist bæði í september og október, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Vísital neysluverðs lækkaði á milli mánaða. Mest munaði um lækkun flugfargjalda um 21,8 prósent og föt og skó, sem lækkuðu um 3,4 prósent. Kostnaður vegna búsetu í…
Hlutabréf Alvotech hafa fallið um meira en ellefu prósent í Kauphöllinni í morgun eftir að bandarískur dómstóll féllst á kröfu Janssen um bráðabirgðalögbann við markaðssetningu á hliðstæðu félagsins við gigtarlyfið Simponi, sem hefur verið talin einn helsti vaxtarbroddur Alvotech á næstu árum…
– Mikil verðmætasköpun í afurðum af fullorðnu fé Slátrun er nýlokið á Grímsstöðum í Reykholtsdal í Borgarfirði, en þetta er annað árið sem slátrað er samkvæmt nýju leyfi sem heimilar slátrun fyrir allt að 100 fjár á dag. Áður störfuðu ábúendurnir Jóhanna ...
Fjögur ár eru liðin síðan Ívar Örn Hansen og Þórey Hafliðadóttir stofnuðu Helvítis ehf. og hófu framleiðslu á eldpiparsultum.
Árið 2026 heimsóttu skemmtiferðaskip 31 höfn og áfangastaði á landinu öllu í 1.038 skipakomum. Skipin fluttu 305.118 farþega um landið allt. Útgerðir skemmtiferðaskipanna greiddu 3.887.738.453 krónur í hafnar- og sveitasjóði landsins á árinu. „Upphæðir sem í mörgum tilvikum eru lunginn í tekjum…
Tekjur breska ríkisins af sérstökum skatti á stafræna þjónustu námu 944 milljónum punda á skattárinu 2025–2026, samkvæmt upplýsingum bresku skatta- og tollstjórnarinnar, HMRC. Skatturinn nær meðal annars til tekna af samfélagsmiðlaþjónustu. „Skattur á sta ...
Puri sá um úthlutun flaga Nvidia á sama tíma og hann var í sambandi við stjórnanda hjá Super Micro sem hefur verið orðað við smygl á flögum til Kína.
Puri sá um úthlutun flaga Nvidia á sama tíma og hann var í sambandi við stjórnanda hjá Super Micro sem hefur verið orðað við smygl á flögum til Kína.
Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en í fyrra. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor LbhÍ, segir samtal hafið við ráðuneytið um fjárframlög til skólans, þó leiðrétting hafi fengist að hluta sitji skólinn eftir með ...
Norsk stjórnvöld hafa heimilað notkun erfðabreyttra hráefna í fóður fyrir eldisfisk, að því tilskildu að hráefnin geti ekki spírað og að notkun þeirra hafi verið samþykkt innan Evrópusambandsins, að því er fram kemur í nýrri umfjöllun Intrafish.
Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að beikonneyslu landsmanna. Beikon úr innfluttum grísasíðum frá Danmörku og Þýskalandi virðist nær fylla hillur stórmarkaða. Beikon eins framleiðanda úr íslenskum grísasíðum fannst ...
Eldisgjöld Arnarlax til Vesturbyggðar á þessu ári gætu lækkað um 3/4 af því sem sveitarfélagið gerði ráð fyrir. Gerður B. Sveinsdóttir, bæjarstjóri segir að eldisgjöld fyrir árið 2026 hafi verið áætluð „í samræmi við áætlað sláturmagn Arnarlax, þann kostnað sem endurspeglar þjónustuna og í samræmi…
Samdráttur í íslenskri ferðaþjónustu yfir vetrarmánuðina kann þegar að hafa kostað mun fleiri störf en þau liðlega 300 talsins sem voru undir þegar framtíð verksmiðju Elkem á Grundartanga var í óvissu, að sögn nýs aðstoðarforstjóra Travel Connect. Hún segir mikilvægt að horfa til fleiri þátta en…
Starfsfólk Fossa valdi Einhverfusamtökin í ár á Takk degi fjárfestingarbankans.
Verðbólga mælist 5,8 í nóvember, samanborið við 5,9 prósent í október. Vísistala neysluverðs lækkar um 0,54 prósent milli mánaða.
GSIS sf., félagið á bak við Tækniþjálfun Gylfa Sig, skilaði 37 milljóna króna hagnaði á árinu 2025 samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins sem birt var í gær.
Logi Karlsson hefur verið ráðinn forstjóri Símans ehf. og tekur við starfinu 1. desember næstkomandi. María Björk Einarsdóttir hefur stýrt Símanum samhliða starfi forstjóra Ása frá því að fjarskiptareksturinn var færður í sérstakt dótturfélag í júlí.
Miðlafélagið mun sinna auglýsingasölu ásamt heildsölu, dreifingu og rekstri innviða á sviði miðla og auglýsinga.
Norska flugfélagið Norse Atlantic hefur fellt niður allar áætlunarferðir sínar í dag en félagið gaf það út í gær að reksturinn stæði tæpt. Viðræður standa...
Greiningardeildir bankanna höfðu spáð óbreyttri eða lítillega hærri verðbólgu.
Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn sölustjóri veitingasviðs Banana, dótturfélags Haga. Hann hefur þegar tekið til starfa.
Í fréttatilkynningu frá Sjómannasambandi íslands kemur fram að undirritaður hafi verið nýr kjarasamningur Sjómannasambandsins, SSÍ, við Landssamband smábátaeigenda,LS, og Samtök smærri útgerða, SSÚ. „Það er fagnaðarefni að loksins hafi tekist að gera nýjan samning fyrir smábáta. Síðast var gerður…
Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskip sökk
Af þeim 400 samlags- og sameignarfélögum sem greiddu mest í skatt í fyrra högnuðust lögfræðistofur að jafnaði mest.
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum til smásala helst óbreytt í átta mánuði samkvæmt ákvörðun verðlagsnefndar búvara.
Húsnæðiskostnaður hefur síðustu ár íþyngt hlutfallslega fleira fólki sem býr í leiguhúsnæði en því sem býr í sínu eigin húsnæði. Formaður Samtaka leigjenda á Íslandi segir ólíðandi að yfir fjórðungur tekna fari í húsnæði.
Íslandsbanki hefur það sem af er ári komið að skuldabréfaútgáfum fyrir um 80 milljarða króna.
„Fólk er duglegt að mæta í skræpóttum sokkum til að fagna fjölbreytileikanum. En það ristir oft ekki mjög djúpt þegar á reynir,“ segir Bjarney L. Bjarnadóttir, stundakennari við Háskólann á Bifröst, sérkennari við Grunnskóla Borgarfjarðar og formaður Þroskahjálpar á Vesturlandi.
Dunga Jákup verður gefið nafn síðar í vikunni
Þjóðarhöll ehf. segist fyrst hafa fengið upplýsingar um tap Íslenskra aðalverktaka hf. árið 2025 og mögulega neikvæða eiginfjárstöðu félagsins þegar Morgunblaðið leitaði svara 12. nóvember.
Engar fréttir fundust. Prófaðu önnur leitarorð eða annan miðil.