Fróðleikur · Vextir
Hvað eru stýrivextir?
Stýrivextir eru vextir sem Seðlabankinn ákveður. Þeir eru helsta tæki bankans til að hafa áhrif á verðbólgu og umsvif í efnahagslífinu.
Stýrivextir eru vextir sem Seðlabanki Íslands ákveður og notar til að hafa áhrif á vaxtastig í hagkerfinu. Þegar bankinn hækkar stýrivexti verða lán dýrari, eftirspurn getur minnkað og verðbólga hjaðnað. Þegar bankinn lækkar stýrivexti geta útlán aukist og eftirspurn tekið við sér.
Meginvextir
Meginvextir Seðlabankans eru vextir á sjö daga bundnum innlánum í bankanum. Þeir eru mikilvægasta viðmiðið fyrir aðra vexti, svo sem vexti á húsnæðislánum, bílalánum og innlánum. Breytingar á stýrivöxtum skila sér yfirleitt með nokkurri töf út í lánskjör og vexti á sparnaði.
Hvernig virka stýrivextir?
Seðlabankinn hefur áhrif á framboð og verð lausafjár með viðskiptum sínum við bankana. Þegar stýrivextir hækka verður dýrara fyrir bankana að fá lausafé og þeir hækka því vexti á lánum til heimila og fyrirtækja. Hærri vextir geta dregið úr neyslu og fjárfestingu og þar með úr verðbólguþrýstingi. Lækkun vaxta hefur öfug áhrif.
Stýrivextir og verðbólga
Seðlabankinn ákveður stýrivexti með hliðsjón af verðbólguhorfum, stöðu efnahagsmála og fjármálastöðugleika. Peningastefnunefnd bankans tekur ákvarðanir um vexti og kynnir þær opinberlega. Stýrivextir einir og sér tryggja ekki lága verðbólgu, en þeir eru eitt mikilvægasta tækið til að halda henni í skefjum.
Á M5 má sjá nýjustu stýrivexti á síðunni Hagtölur, ásamt grafi sem sýnir þróun þeirra yfir valið tímabil. Nánari upplýsingar er að finna á vef Seðlabankans um vexti.